Vildu stöðva „stjórnlausa afbrotahrinu“ í Hrísey Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. október 2020 19:31 Hrísey er í Eyjafirði. Vísir/Egill
Lögreglan á Norðurlandi eystra fór meðal annars fram á gæsluvarðhald yfir manni búsettum í Hrísey sem grunaður er um fjölmörg ofbeldisbrot til þess að stöðva afbrotahrinu hans, sem lögreglan segir að virðist hafa verið orðin stjórnlaus. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í úrskurði Landsréttar sem staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir manninum á dögunum. Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi til 12. nóvember. Fyrr í mánuðinum greindi lögreglan frá því að verið væri að rannsaka fjölmörg ofbeldisbrot mannsins, sem er á fertugsaldri, meðal annars gegn unnustu sinni, sambýlisfólki og nágrönnum í Hrísey. Í úrskurði Landsréttar er varpað ljósi á það hvaða brot maðurinn er grunaður um að hafa framið. Þar segir að hann sé sakaður að hafa ítrekað ráðist að unnustu sinni, fyrst í nóvember á síðasta ári þannig að hann hafi tekið hana hálstaki þannig að hún missti meðvitund. Konan hafi sakað hann um daglegt ofbeldi frá því að samband þeirra hófst skömmu áður. Í úrskurði Landsréttar segir að það sem hafi orðið ástæða afskipta lögreglu af manninum hafi verið að maðurinn hafi skvett súpu og olíu yfir konuna, slegið hana, hrint henni og troðið pappír ofan í kok hennar, auk frelssisviptingar. Maðurinn er sagðir hafa játað þetta að stórum hluta. Grunuð um endurtekin brot á sóttvarnarlögum Þá er hann grunaður um að hafa ráðist á annan mann, brotið allar rúður í húsi hans og síðar ráðist á hann og keyrt hátalara að hálsi fórnarlambsins sem hafi átt erfitt með andardrátt. Að auki er hann grunaður um að hafa ruðst inn til nokkurra nágranna sinn, sakaður um innbrot og þjófnað í Dalvíkurbyggð svo dæmi séu tekin. Þá eru hann og unnusta hans sökuð um endurtekin brot á sóttvarnarlögum á meðan þau hafi átt að vera í sóttkví eftir að hafa valið að sleppa skimun eftir heimkomu erlendis frá. Í greinargerð lögreglu segir meðal annars að maðurinn hafi ítrekað rofið skilyrð reynslulausnar og „nú sé ástandið þannig að hann virðist vera í stjórnlausri afbrotahrinu.“ Mikilvægt sé að stöðva þessa brotahrinu svo hægt sé að ljúka rannsókn þessara mála og eftir atvikum dómsmeðferðar þeirra. Að auki sé það mat lögreglustjóra að vernda þurfi samfélagið fyrir manninum. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms og verður maðurinn því í gæsluvarðhaldi til 12. nóvember.
Hrísey Dómsmál Lögreglumál Akureyri Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Sjá meira