Drengjalandslið Íslands í knattspyrnu, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, lagði Svía að velli í fyrsta leik á alþjóðlegu móti á vegum UEFA í Västra Mark í Svíþjóð í dag, 2:0.
Ásgeir Galdur Guðmundsson úr Breiðabliki kom íslenska liðinu yfir á 12. mínútu og Tómas Johannessen bætti við marki í byrjun síðari hálfleiks.
Íslensku strákarnir mæta Sviss á föstudaginn og Írlandi á mánudaginn í tveimur síðari leikjum sínum á mótinu.