Viðskipti innlent

Rútu­ferðir Air­port Direct ekki al­mennings­sam­göngur og ættu að rukka vask

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Airport Direct hefur hingað til ekki innheimt vask af rútumiðunum. 
Airport Direct hefur hingað til ekki innheimt vask af rútumiðunum.  Vísir/Vilhelm

Rútuferðir Airport Direct milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur teljast ekki til almenningssamganga að mati Skattsins. Rútufyrirtækið hefur undanfarin ár ekki innheimt virðisaukaskatt af farmiðasölunni ólíkt keppinautunum.

Flugrútan sem Kynnisferðir reka og Airport Express á vegum Gray Line innheimta 11 prósent vsk af sínum farmiðum. Eftir því sem næst verður komist veita fyrirtækin sömu þjónustu, sem er akstur með farþega milli flugstöðvarinnar og Reykjavíkur. 

Vegna virðisaukaskattsleysisins hjá Airport Direct eru fargjöld Flugrútunnar og Airport Express hærri en hjá Airport Direct en bæði Flugrúturnar og Airport Express fá minna í sinn hlut vegna virðisaukaskattsins sem það innheimtir og skilar í ríkissjóð. 

Forsvarsmenn Flugrútunnar kvörtuðu árið 2020 til Ríkisskattstjóra vegna þessa og óskuðu eftir umsögn um það hvort sætaferðir frá Keflavíkurflugvelli væru undanþegnar virðisaukaskatti eða ekki. 

Fram kemur í frétt Túrista.is að Snorri Olsen, ríkisskattstjóri, segi í dag að eftir athugun á málinu sé það niðurstaða Skattsins að ferðirnar sem um ræðir flokkist ekki sem almenningssamgöngur. Ekki sé þó hægt að segja til um næstu skref málsins. 

Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, sagði í samtali við Vísi á sínum tíma að Kynnisferðir hefðu metið það svo að flugvallaaksturinn teldist ekki til almenningssamganga.

„Við höfum metið það svo að þetta bæri okkur að gera. Þegar og eftir að Hópferðabílar fóru inn í virðisaukaskattskerfið 2016, en fyrir þann tíma var akstur hópferðabíla undanþeginn eins og leigubílar sem eru ekki í vsk kerfinu. En, eftir 2016 fórum við inn í vsk kerfið og höfum verið með allan okkar rekstur inni í því kerfi, sem snýr að rútuakstri,“ sagði Björn.  





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×