Þessar auglýsingar þóttu bestar á árinu

Fulltrúar Pipar taka á móti verðlaunum á ÍMARK-deginum.
Fulltrúar Pipar taka á móti verðlaunum á ÍMARK-deginum. Eggert Jóhannesson

Aug­lýs­inga­stof­an Hvíta húsið fékk flest verðlaun þegar Lúður­inn var af­hent­ur á ÍMARK-deg­in­um í dag.

Þetta er í 37. skipti sem Lúður­inn er veitt­ur en þar er um að ræða upp­skeru­hátíð markaðs- og aug­lýs­inga­fólks þar sem frum­leg­ustu, mest skap­andi og snjöll­ustu hug­mynd­irn­ar sem eru út­færðar á framúrsk­ar­andi hátt fá viður­kenn­ingu.

Verðlaun­in eru veitt í sam­starfi ÍMARK, sam­taka markaðs- og aug­lýs­inga­fólks, og Sam­bands ís­lenskra aug­lýs­inga­stofa.

Þrír Lúðrar fyr­ir Icelanda­ir

Hvíta húsið vann sem fyrr seg­ir fimm Lúðra í ár. Þrír af þeim voru fyr­ir hönd Icelanda­ir en það var í flokki prentaug­lýs­inga, viðburðar árs­ins og mörk­un & ásýnd.

Þá vann stof­an tvo Lúðra í flokki al­manna­heilla­aug­lýs­inga fyr­ir Virk, und­ir her­ferðnni „Það má ekk­ert leng­ur“.

Stof­urn­ar Pip­ar og Hér & nú unnu fjóra Lúðra hvor. Pip­ar vann meðal ann­ars í flokki kvik­myndaðar aug­lýs­ing­ar árs­ins fyr­ir aug­lýs­ing­una „Takk Eg­ill“ fyr­ir Toyota á Íslandi.

Þar kvaddi Toyota Egil Ólafs­son lista­mann sem verið hafði rödd Toyota í um 30 ár og við kefl­inu tók Ólaf­ur Darri Ólafs­son leik­ari.

„Heima er pest“ fékk þrjá Lúðra

Hér & nú vann þrjá Lúðra fyr­ir her­ferðina „Heima er pest“ fyr­ir Heilsu­gæsl­una auk þess sem stof­an vann Áruna, fyr­ir her­ferðina „Óþolandi ódýrt“ fyr­ir Atlantsol­íu.

Þá vann Brand­en­burg tvo Lúðra, en Circus, Peel og Indó fengu einn Lúður hver.

Hér fyr­ir neðan má sjá sig­ur­veg­ar­ana í hverju flokki fyr­ir sig.

Kvik­myndaðar aug­lýs­ing­ar

Heiti her­ferðar: Takk Eg­ill
Aug­lýs­andi: Toyota á Íslandi
Aug­lýs­inga­stofa: Pip­ar

Útvarpasaug­lýs­ing­ar

Heiti her­ferðar: Blótaðu al­menni­lega
Aug­lýs­andi: Goði / Kjarna­fæði
Aug­lýs­inga­stofa: Circus

Prentaug­lýs­ing­ar

Heiti her­ferðar: Ice­land Airwaves - aug­mented reality
Aug­lýs­andi: Icelanda­ir
Aug­lýs­inga­stofa: Hvíta húsið

Vef- og sam­fé­lags­miðlar – mynd­bönd

Heiti her­ferðar: Out­hor­se your email
Aug­lýs­andi: Íslands­stofa
Aug­lýs­inga­stofa: Peel

Vef- og sam­fé­lags­miðlar – Al­mennt

Heiti her­ferðar: Dag­ur ís­lenskr­ar tungu
Aug­lýs­andi: Blush
Aug­lýs­inga­stofa: Brand­end­burg

Sta­f­ræn­ar aug­lýs­ing­ar

Heiti her­ferðar: Árið þitt 2022
Aug­lýs­andi: Dom­in­os
Aug­lýs­inga­stofa: Pip­ar

Um­hverfisaug­lýs­ing­ar

Heiti her­ferðar: Pen­inga­vegg­ur­inn
Aug­lýs­andi: Indó
Aug­lýs­inga­stofa: Indó

Vegg­spjöld og skilti

Heiti her­ferðar: Heima er pest
Aug­lýs­andi: Heilsu­gæsl­an
Aug­lýs­inga­stofa: Hér og nú

Viðburðir

Heiti her­ferðar: Ice­land is just around the corner
Aug­lýs­andi: Icelanda­ir
Aug­lýs­inga­stofa: Hvíta húsið

Bein markaðssetn­ing

Heiti her­ferðar: Heima er pest
Aug­lýs­andi: Heilsu­gæsl­an
Aug­lýs­inga­stofa: Hér og nú

Mörk­un – Ásýnd vörumerk­is

Heiti her­ferðar: Icelanda­ir - end­ur­mörk­un
Aug­lýs­andi: Icelanda­ir
Aug­lýs­inga­stofa: Hvíta húsið

PR

Heiti her­ferðar: Finndu mun­inn
Aug­lýs­andi: Blush
Aug­lýs­inga­stofa: Pip­ar

Her­ferð

Heiti her­ferðar: Heima er pest
Aug­lýs­andi: Heilsu­gæsl­an
Aug­lýs­inga­stofa: Hér og nú

Al­manna­heilla­aug­lýs­ing­ar – Kvik­mynduð aug­lýs­ing

Heiti her­ferðar: Það má ekk­ert leng­ur
Aug­lýs­andi: Virk
Aug­lýs­inga­stofa: Hvíta húsið

Al­manna­heilla­aug­lýs­ing­ar – her­ferðir

Heiti her­ferðar: Það má ekk­ert leng­ur
Aug­lýs­andi: Virk
Aug­lýs­inga­stofa: Hvíta húsið

Al­manna­heilla­aug­lýs­ing­ar – Op­inn flokk­ur

Heiti her­ferðar: Römp­um upp Ísland
Aug­lýs­andi: Römp­um upp Ísland
Aug­lýs­inga­stofa: Brand­en­burg

Áran

Heiti her­ferðar: Óþolandi ódýrt
Aug­lýs­andi: Atlantsol­ía
Aug­lýs­inga­stofa: Hér og nú

Sjón­varps­aug­lýs­ing árs­ins – val fólks­ins

Heiti her­ferðar: Takk Eg­ill
Aug­lýs­andi: Toyota á Íslandi
Aug­lýs­inga­stofa: Pip­ar

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK