„Það er hvergi skjól að hafa“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. janúar 2022 18:17 Strompurinn fauk af. Vísir/Egill Það hefur blásið kröftuglega víða um land í dag, svo kröftuglega að strompurinn á Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík þoldi ekki álagið. Veðurfræðingur segir vindáttina gera það að verkum að hvergi sé skjól að hafa á suðvesturhorninu. Það dettur þó allt í dúnalogn um allt land á miðnætti.
Appelsínugular og gular viðvaranir hafa verið í gildi í dag vegna veðurs. Veðurofsinn er að ganga niður á Suðvesturhorninu en er nú að færa sig norður og suðaustur á land. Mjög hvasst hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í dag, svo hvasst að strompurinn á Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu fór á hliðina. Hann var fjarlægður í dag. Eins og sjá má er aftari strompurinn einfaldlega horfinn.Vísir/Egill „En það var dálítið athyglisvert að vindurinn, til dæmist úti á Seltjarnarnesi, hann komst í 23 metra á sekúndu. Það er svona með því meira sem að maður sér á þeim stað Enda var þetta ansi hvasst. Það er hvergi skjól að hafa í þessasri vestanátt á þessum slóðum, hvorki á Suðurnesjum né á höfuðborgarsvæðinu. Maður fær þetta bara beint í nefið,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis í dag. Það er farið að lægja á suðvesturhorni landsins en sem fyrr segir er veðrið að færa sig um set. „Í þessum töluðu orðum eru hvorki meira né minna en 33 metrar á sekúndu á bláhæðinni á Holtavörðuheiðinni,“ sagði Einar og bætti því við að búið væri að loka Öxnadalsheiðinni. Reikna má með miklu hvassviðri á suðausturhorni landsins, en þar er appelsínugul viðvörun í gildi fram á nótt. Öxnadalsheiði: Vegurinn er lokaður vegna veðurs. Næstu upplýsingar um kl 20:30 #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) January 25, 2022 Þar getur vindur farið upp í 40 metra á sekúndu og er varað við að ekkert ferðaveður sé á þessum slóðum næstu klukkutímana. „Ef að fólk er á ferðinni ýmist vestur á firði yfir heiðarnar og hálsana þangað eða norður í land. Ég myndi bara hinkra og bíða,“ sagði Einar. „Svo dettur allt í dúnalogn á miðnætti.“ Alls staðar á landinu? „Já, það gerir það. Þetta fer yfir okkur með látum og klárast bara einn tveir og þrír.
Veður Reykjavík Tengdar fréttir Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag. 25. janúar 2022 13:11 Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25. janúar 2022 11:04 Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25. janúar 2022 07:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag. 25. janúar 2022 13:11
Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25. janúar 2022 11:04
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25. janúar 2022 07:36