Sprengigos hafið á eyjunni Sankti Vinsent Eiður Þór Árnason skrifar 9. apríl 2021 15:00 Eldfjallið spúir miklu magni af gosefnum og gasi út í andrúmsloftið. UWI Seismic Research Centre Sprengigos er hafið í eldfjallinu La Soufrière á eyjunni Sankti Vinsent í Karíbahafi. Mikið öskufall er á nærliggjandi svæði en ekki hafa borist tilkynningar um manntjón.
Á síðustu dögum hefur virkni í eldfjallinu aukist til muna þar sem eldgos var þegar hafið. Í nótt var staðan metin á þann veg að sprengigos kunni að vera yfirvofandi, líkt og Vísir greindi frá fyrr í dag. Yfirvöld fyrirskipuðu í nótt 1.600 manns sem búa á norðurhluta eyjunnar að yfirgefa heimili sín vegna hættunnar en almannavarnir staðfestu í dag að sprengigos væri hafið. Jarðvísindastofnun Háskólans í Vestur-Indíum segir að sprengigosið hafi byrjað klukkan 8:41 að staðartíma en jarðskjálftavirkni hafði mælst á svæðinu frá því í gær. Voru skjálftarnir taldir vera merki um að kvika væri að nálgast yfirborðið. Photos from the explosive eruption that occurred at La Soufriere, SVG at 8:41 am local time. Ash has begun to fall on the flanks of the volcano and surrounding communities including Chateaubelair and Petite Bordel. Some has gone offshore and has even reached the Observatory. #svg pic.twitter.com/geoG4nOyrK— UWISeismic Research (@uwiseismic) April 9, 2021 Að sögn almannavarna nær öskustrókur nú yfir sex þúsund metra upp í loftið og er á leið austur yfir Atlantshafið. Erouscilla Joseph, yfirmaður jarðvísindastofnunarinnar, varaði við því í samtali við AP-fréttaveituna að hugsanlega sé von á frekari sprengingum. Fjórum skemmtiferðaskipum hefur verið siglt til eyjarinnar til að aðstoða við rýmingu. Forsætisráðherrann Ralph Gonsalves sagði á blaðamannafundi að einungis þeir sem hafi verið bólusettir við Covid-19 fái að fara um borð í skipin eða fái úthlutað tímabundnu hæli á nærliggjandi eyjum. The majesty that is #LaSoufrière is awake in all her terrifying glory. https://t.co/2rnbZg1baM pic.twitter.com/ZBYgS6mHcT— Heidi Badenock (@heidibadenock) April 9, 2021 Yfirvöld í Sankti Lucia, Grenada, Barbados og Antigua hafa samþykkt að taka við fólki sem flýr nú gosið. Fram kemur á Vísindavefnum að sprengigos einkennist af mikilli gosgufu og gosmöl. Stafa þau aðallega af skyndilegri losun reikulla efna, einkum vatns, úr kvikunni við lágan þrýsting. Rísi bergbráð hratt upp úr jörðu verður ferlið með hraða sprengingar og hraunslettur og gufa þeytast hátt í loft upp. Til samanburðar kemur nær eingöngu upp hraun í hraungosum. Eldfjallið La Soufrière gaus síðast árið 1979, eða fyrir 42 árum síðan. Ekkert manntjón var í því gosi en um 1.600 þúsund manns létust þegar það gaus árið 1902. Gerðist það skömmu eftir að eldgos hófst í Mt Pelee á eyjunni Martinique með þeim afleiðingum að bærinn Saint-Pierre gjöreyðilagðist og yfir 30 þúsund manns létust. Aftur hefur borið á virkni í Mt Peele en í byrjun desember var svæðið sett á gult viðvörunarstig vegna skjálftavirkni. Er það í fyrsta sinn sem svo er gert frá því það gaus síðast árið 1932. The La Soufriere volcano in St Vincent has moved into an explosive state. pic.twitter.com/TxRl2O8eDE— Jamaica Observer (@JamaicaObserver) April 9, 2021 Sankti Vinsent er hluti af ríkinu Sankti Vinsent og Grenadíneyjum, með sína 110 þúsund íbúa. Flestir búa í höfuðborginni Kingstown sem er að finna á suðurhluta Sankti Vinsent. La Soufrière er á norðurhluta eyjarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sankti Vinsent og Grenadínur Eldgos og jarðhræringar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Fleiri fréttir Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Sjá meira