Í skoðun að styrkja samgöngur til og frá flugvellinum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. febrúar 2021 12:09 Rútuferðir á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgar liggja niðri vegna fækkunar flugfarþega. Samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort rétt sé að grípa inn í og styrkja samgöngur þar á milli í ljósi þess að komufarþegar brjóti ítrekað reglur um sóttkví. Vísir/Vilhelm Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort og þá með hvaða hætti styrkja eigi samgöngur á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarinnar í ljósi þess að enn eru brögð að því að komufarþegar virði að vettugi reglur um sóttkví með því að láta vini og ættingja sækja sig á völlinn.
Öllum sem hingað koma er skylt að fara í skimun við komuna og beint í sóttkví að því loknu. Erfitt að eltast við fólk með einbeittan brotavilja Arngrímur Guðmundsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. „Það er talsvert um þetta ennþá. Við erum með löggæslu alla daga niður í komusal og við sjáum endalaust af bílum sem koma að sækja. Þetta er orðinn hálfgerður eltingaleikur þar sem menn taka leigubíla niður í bæ [Keflavík] á ákveðin svæði og þar koma ættingjar og sækja þá þannig að það er orðið ansi erfitt að ná í skottið á fólki.“ Í ljósi fækkunar flugfarþega liggja rútuferðir til og frá Keflavíkurflugvelli niðri. Komufarþegar hafa því tvo valkosti í stöðunni en það er að taka leigubíl eða að leigja bílaleigubíl. „Í sjálfu sér þá horfir fólk á leigubílinn. Hann kostar dálítið mikið til Reykjavíkur til dæmis, jafnvel dýrari en flugfarið. Ég held að með því að koma upp samgöngum á milli Reykjavíkur og flugvallarins þá mun það létta mikið á þessu. Fólk myndi frekar fara í rútu til Reykjavíkur heldur en að láta sækja sig“. Fréttastofa hefur nú fengið staðfest frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að til skoðunar sé hvort rétt sé að tryggja ódýrari samöngur á milli flugvallarins og höfuðborgarinnar í ljósi aðstæðna. Ráðuneytið skoðar nú valkosti sem uppi eru til þess en einn þeirra lýtur að því að styrkja flugrútuna. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Reglugerðin að fullu innleidd á næstu dögum Líkt og fram hefur komið verða komufarþegar sektaðir fyrir að vera ekki með svokallað PCR próf. Arngrímur segist eiga von á því að ríkissaksóknari muni taka ákvörðun um sektarupphæð í dag. „Við reiknum með því að núna á næstu dögum þá verði þessi reglugerð innleidd að fullu hjá okkur þar sem menn verða sektaðir á landamærunum ef þeir koma ekki með PCR vottorð.“
Keflavíkurflugvöllur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samgöngur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Sjá meira