Nýtt lag og tónlistarmyndband frá Móu: „Það losnaði um einhverja flóðgátt“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. október 2021 11:30 Móa gefur í dag út lagið Pure og tónlistarmyndband við lagið. blóð stúdíó Móeiður Júníusdóttir snýr aftur í tónlistina í dag með glænýju lagi og tónlistarmyndbandi undir nafninu Móa. Tvö ár eru síðan hún byrjaði að semja tónlist aftur og segist nú einblína meira á kjarnann sinn. „
Ég stefndi ekkert endileg á að gefa neitt út aftur. Þetta bara gerðist nokkuð skyndilega satt best að segja,“ segir Móa í samtali við Lífið. „Ég var byrjuð að semja svolítið aftur fyrir svona tveimur árum. Þá var eins og það losnaði um einhverja flóðgátt og ég bara varð að hleypa þessum tilfinningum út. Mín leið er að gera það í gegnum tónlistina. Í Covid ástandinu fékk ég síðan kærkomið tækifæri til þess að leita inn á við og vinna í tónlistinni. Þarna skapaðist líka tækifæri til þess að finna út hvað skiptir mann máli og ég komst að því að tónlistin er mín ástríða þótt ég hafi kannað ýmsar aðrar slóðir.“ Móa starfar sem kennari í dag en vinnur nú að nýrri plötu.blóð stúdíó Kyrrð í andartakinu Móa lærði guðfræði og uppeldis-og menntunarfræði og starfar við kennslu. Hún er gift þriggja barna móðir og segir að það séu mikil forréttindi að fá að starfa með unglingum. „Ég hef fengið mjög góðan stuðning frá fjölskyldunni. Þau styðja mig öll í þessu, vita að þetta skiptir mig máli og eru vön því að ég taki upp á ýmsu.“ Lagið Pure kemur út í dag og segir Móa að fleiri lög muni fylgja í kjölfarið. Vonar hún að þetta endi með stórri plötu. „Ég vann lagið með Arnari Guðjónssyni, tónlistarmanni og einum öflugasta upptökustjóra landsins um þessar mundir. Ég hef unnið með honum áður og það kom enginn annar til greina í þetta samstarf. Þetta er alltaf spurning um traust,“ útskýrir Móa. „Textinn fjallar um von, þessa tilfinningu sem streymir um mann á sama tíma og maður upplifir það hvernig tíminn þýtur fram hjá manni. Maður nær einstöku sinnum að upplifa einhvers konar kyrrð í andartakinu. Fyrir mér endurspeglar hann tónlistina sjálfa, það þegar hún streymir um mann.“ Lagið kallaði á einfaldleika Myndbandið er unnið í samstarfi við Blóð Stúdío sem er skapandi fyrirtæki þeirra Ása Má Friðrikssonar og Ernu Hreinsdóttur. „Þau eru að gera ótrúlega flotta hluti. Ási Már leikstýrir auk þess sem frábært teymi af listamönnum koma að því,“ segir Móa. Myndbandið var tekið upp í sköpunarmiðstöðinni Fúsk í Gufunesi. „Ég held að lagið sjálft hafi kallað á einfaldleika, þar sem fókusinn er á aðalatriðið sem er tónlistin, röddin og klassískur sviðsflutningingur. Lýsing og birta leikur stórt hlutverk.“ Myndbandið við lagið Pure má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Móa - Pure Móa er eins og áður segir með mörg lög í farteskinu og stefnir á að gefa út nýja plötu, enda með fullt af hugmyndum í kollinum. „Mig langar að vinna með góðum píanista og svo væri gaman að gera dúett, helst með karlmanni. Ég hef ekki gert það.“ Einblínir meira á kjarnan Móa segir að hún hafi fengið mjög góð viðbrögð við þessari endurkomu í tónlistarsenuna hér á landi. „Ég hef upplifað mikla hlýju og hvatningu að undanförnu. Er umvafin kærleik,“ segir Móa. „Tónlistin er fyrir mér svarið við lífinu. Við getum sem manneskjur svarað þeirri reynslu og þeim tilfinningum sem við upplifum á ólíkan hátt. Mín leið er tónlistin.“ Lagið Pure er komið út á Spotify.blóð stúdíó Á Spotify má finna mikið af tónlist frá tónlistarkonunni frá árunum 1993 til 1998. Í Pure má þó heyra nýjan tón. „Ég held að ég hafi breyst á þann hátt að ég einblíni meira á kjarnann en er kannski minna leitandi varðandi hljóðheiminn. Röddin leiðir mig áfram á réttan stað og ég veit hvað ég vil,“ segir Móa að lokum.
Tónlist Mest lesið Sjö hættulegar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í Áskorun Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið „Elska að hafa skipulagt kaos“ Tíska og hönnun Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Lífið Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Lífið Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Kaleo gefur út sitt fyrsta lag í þrjú ár Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu „Fór langt fram úr mínum björtustu vonum“ Draumkennd framtíðarvitrun frá heitustu danssveit landsins Átján ára og stefna langt Súperstjörnur landsins fögnuðu með GDRN Hlustendaverðlaunin 2024: Þegar Sveppi og Ásgeir Orri mættu óvænt á sviðið Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn Hlustendaverðlaunin 2024: Barnakór tók undir með XXX Rottweiler Níu bónorðsbréf til sömu konunnar innblásturinn að nýjustu plötunni Hlustendaverðlaunin 2024: Tónlistaratriðin sem slógu í gegn Myndaveisla: Margt um dýrðir á Hlustendaverðlaunum 2024 Galið að geyma lagið í skúffunni Sjá meira