fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
433Sport

Fullyrðir að United sé komið vel á veg í viðræðum um kaup á Varane

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 15. apríl 2021 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Alvarez fréttamaður á Spáni fullyrðir að Manchester United sé komið vel á veg í viðræðum um kaup á Raphael Varane varnarmanni Real Madrid.

Forráðamenn Manchester United vonast eftir því að Real Madrid lækki verðmiða sinn á Varane í sumar. Líkur eru á að franski varnarmaðurinn verði til sölu. Varane sem er 27 ára gamall miðvörður er á óskalista Manchester United, verðmiði Real Madrid er sagður vera í kringum 60 milljónir punda.

Real Madrid gæti hins vegar þurft að lækka þann verðmiða í sumar þegar Varane mun aðeins eiga ár eftir af samningi sínum. Real Madrid þarf að losa um fjármuni í sumar til að geta fengið inn nýja leikmenn.

Vitað er að Real Madrid leggur mikla áherslu á það að krækja í Kylian Mbappe frá PSG en til þess þarf félagið að selja leikmenn.

Ole Gunnar Solskjær vill fá inn varnarmann í sumar til að mynda par með Harry Maguire en Victor Lindelöf hefur verið í því hlutverki síðustu ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tuchel sagður vonast eftir tilboði frá United – Byrjaðir að ræða við umboðsmanns McKenna

Tuchel sagður vonast eftir tilboði frá United – Byrjaðir að ræða við umboðsmanns McKenna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þrátt fyrir Meistaradeild þarf Aston Villa að selja eina stjörnu

Þrátt fyrir Meistaradeild þarf Aston Villa að selja eina stjörnu
433Sport
Í gær

Tekur Varane afar óvænt skref út fyrir Evrópu?

Tekur Varane afar óvænt skref út fyrir Evrópu?
433Sport
Í gær

Mánuði eftir að þau sváfu saman hringdi konan með ansi óvenjulegar hótanir – Heimtaði þetta ef ekki ætti illa að fara

Mánuði eftir að þau sváfu saman hringdi konan með ansi óvenjulegar hótanir – Heimtaði þetta ef ekki ætti illa að fara