Blysför í Vestmannaeyjum í tilefni 50 ára gosafmælis Kristján Már Unnarsson skrifar 22. janúar 2023 05:51 Frá Heimaey á fjórða degi eldgossins árið 1973, fyrir hálfri öld. Mynd/Ingvar Friðleifsson. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Vestmannaeyjar á morgun, mánudag, 23. janúar, í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Hápunktur margvíslegra minningarviðburða í bænum verður blysför frá Landakirkju annaðkvöld að Eldheimum þar sem gossins verður minnst með athöfn sem hefst klukkan 19:30.
Dagskrá gosdagsins hefst raunar í Eldheimum á öðrum tímanum í nótt, um líkt leyti og eldgosið hófst fyrir hálfri öld. Nemendur í 10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja flytja fréttatexta og viðtöl sem hljómuðu í Ríkisútvarpinu þann 23. janúar árið 1973. Lesturinn fer fram á heila og hálfa tímanum í tæpan sólarhring í um það bil tíu mínútur í hvert skipti. Lesturinn hefst klukkan 01:30 og mun standa til 19:00. Lesturinn verður í beinu streymi á netinu. Klukkan 12 á hádegi á morgun hefst sérstakur minningarfundur bæjarstjórnar í Ráðhúsinu. Forseti Íslands ávarpar fundinn. Einnig verður rætt um þá viðburði sem efnt verður til á árinu, bæði vegna 50 ára afmælis Heimaeyjargossins en einnig vegna 60 ára afmælis Surrseyjargossins. Hraunið byrjaði að brjóta niður Kirkjubæina, austustu íbúðarhúsin á Heimaey. Myndin var tekin 25. janúar, á þriðja degi eldgossins.Ingvar Friðleifsson Í Einarsstofu stendur yfir sýning undir yfirskriftinni ,,Hefnd Helgafells og eldgosið í garðinum”. Meðal verka til sýnis er frægasta málverk Guðna Hermansen, Hefnd Helgafells. Einnig sýna félagar í Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja nokkur verk. Sýningin verður opin út vikuna á opnunartíma bókasafnsins. Klukkan 14 verður eldri borgurum boðið í Eyjabíó. Sýnd verður heimildarmyndin Útlendingur heima, uppgjör við eldgos eftir Jóhönnu Ýr Jónsdóttir og Sighvat Jónsson. Samverustund hefst á Bókasafninu klukkan 16 í Ingólfsstofu. Þar er gestum boðið að eiga notalega stund, prjóna eða hekla saman, og koma með hugmyndir í tengslum við verkefnið Handgerðar veifur á Goslokahátíð 2023. Í Sagnaheimi klukkan 16:30 verða nemendur leikskólanna í Eyjum og grunnskólans með sýningu: ,,Heimaeyjargosið 1973 með augum yngstu íbúanna.'' Hápunkturinn verður um kvöldið. Klukkan 18:45 verður safnast saman fyrir utan Landakirkju. Þaðan verður lagt af stað í blysför og göngu að Eldheimum klukkan 19:00. Séra Guðmundur Örn Jónsson og séra Viðar Stefánsson fara með blessunarorð við upphaf göngu. Minningarviðburður í Eldheimum hefst svo klukkan 19:30. Þar flytja ávarp forseti Íslands, forsætisráðherra og forseti bæjarstjórnar, Páll Magnússon. Tónlistarflutning annast þær Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Hér má rifja upp eldgosið og heyra frásagnir Eyjamanna sem upplifðu hamfarirnar:
Heimaeyjargosið 1973 Vestmannaeyjar Eldgos og jarðhræringar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Fréttir Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Innlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Evrópa böðuð bleiku Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Hefja árásir nærri Karkív Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Sjá meira