Laugardalslaug uppiskroppa með gul armbönd og biðlar til foreldra Atli Ísleifsson skrifar 29. nóvember 2021 17:17 Gul armbönd hafa mörg safnast upp á heimilum grunnskólabarna. Vísir/Atli/Vilhelm Laugardalslaug er að verða uppiskroppa með gul armbönd sem sundlaugargestir nota til að læsa skápum sínum í búningsklefunum. Forstöðumaður laugarinnar segir ljóst að gríðarlegur fjöldi armbanda skili sér ekki aftur og að vandamálið sé að stórum hluta tengt börnum sem koma í laugina til að fara í skólasund.
Skólastjórnendur í níu grunnskólum í Reykjavík, sem senda börn í skólasund í Laugardalslaug, sendu póst á foreldra skólabarna í dag þar sem kom fram að laugin sé nú hætt að úthluta gulum armböndum til barna. Þetta sé erfið staða þar sem börn og unglingar séu oft með verðmæti á sér sem þeir vilji læsa inni. Árni Jónsson, forstöðumaður Laugardalslaugar, segir starfsmenn vera í stökustu vandræðum vegna stöðunnar með gulu armböndin. „Þessi þúsund armbönd sem við versluðum í sumar og í haust, þau eru bara að verða búin. Við eigum ekki fyrir almenning sem verður að ganga fyrir hvað þetta varðar. Vandamálið er að við höfum ekki verið að fá armböndin til baka í skólasundinu. Því til staðfestingar þá komu foreldrar barns um helgina og skiluðu heilum 45 armböndum sem barnið hafði safnað saman.“ Vísir Nota gamla innganginn með engu hliði Börn sem koma í Laugardalslaug til að fara í skólasund hafa síðustu misserin notast við gamla inngang laugarinnar sem snýr út að Sundlaugarvegi, á meðan almenningur notast við nýrri innganginn sem snýr út að Reykjavegi. „Þessi breyting mæltist mjög vel fyrir og er fyrirkomulagið betra fyrir alla aðila – starfsmenn, almenning og börnin sjálf,“ segir Árni. „Vandamálið er að það er ekkert hlið fyrir skólabörnin líkt og er fyrir almenning, þar sem þeir skila armböndunum til að komast út. Við höfum verið að benda börnunum á að skila armböndunum en nú er svo komið að verið verðum að bregðast við,“ segir Árni. Hann segir að allt kosti þetta pening, hvert armband kosti um 170 krónur. Kostnaðurinn sé því mikill, enda ógrynni armbanda sem hafi ekki skilað sér aftur. Og fleiri armbönd eru í pöntun. Árni segir að gripið verði til þess ráðs að selja hverju barni í skólasundi armband gegn hóflegu gjaldi – armband sem ætti þá að duga alla skólaveturinn. „Og við biðlum að sjálfsögðu líka til foreldra að grennslast fyrir heima hvort einhver gul armbönd leynist þar og koma þeim aftur til okkar.“
Reykjavík Sundlaugar Skóla - og menntamál Grunnskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira