„Verið að brjóta á réttindum barnsins okkar“

Eyrún Guðmundsdóttir og Revazi Shaverdashvili, eiga von á dóttur í …
Eyrún Guðmundsdóttir og Revazi Shaverdashvili, eiga von á dóttur í desember en Revazi hefur verið vísað úr landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ljós­an mín hef­ur mikl­ar áhyggj­ur af and­legu heils­unni minni,“ seg­ir Eyrún Guðmunds­dótt­ir, grunn­skóla­kenn­ari á höfuðborg­ar­svæðinu, en eig­in­manni Eyrún­ar hef­ur ít­rekað verið neitað um land­vist­ar­leyfi á Íslandi, þrátt fyr­ir að eiga hér eig­in­konu og ófætt barn.

Eig­inmaður Eyrún­ar, Revazi Shaver­dashvili, er upp­runa­lega frá Georgíu og dvel­ur þar nú á meðan hann bíður eft­ir úr­sk­urði kær­u­nefnd­ar Útlend­inga­stofn­un­ar. 

Er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar sem gift­ist ís­lensk­um rík­is­borg­ur­um eig­um regl­um sam­kvæmt að fá hér land­vist­ar­leyfi. En Útlend­inga­stofn­un taldi grun liggja á að Eyrún og Revazi hefðu stofnað til mála­mynd­un­ar­hjú­skap­ar. 

Var sagt að eig­inmaður­inn þyrfti ekki að fara

Mbl.is greindi frá máli Revazi í nóv­em­ber á síðasta ári, en stóð þá til að vísa hon­um úr landi eft­ir að fram­leng­ingu á dval­ar­leyfi hans var hafnað. Hafði hann þá viku til að yf­ir­gefa landið frá því að hon­um barst til­kynn­ing­in.

Var Eyrún barns­haf­andi á þeim tíma og hafði sam­band við Útlend­inga­stofn­un til að greina þeim frá stöðu þeirra hjóna. 

„Ég fæ svör frá þeim um að, að því að ég væri ólétt, að þá þyrft­um við ekki að fara út,“ seg­ir Eyrún.

Misstu barnið í des­em­ber

Þau hjón­in hafa þó ekki átt sjö dag­ana sæla og misstu ófætt barn sitt í des­em­ber. Ekk­ert heyrðist frá Útlend­inga­stofn­un og sóttu þau því aft­ur um land­vist­ar­leyfi fyr­ir Revazi í janú­ar. Höfn­un við um­sókn­inni barst í apríl. 

„Við kærðum þann úr­sk­urð til kær­u­nefnd­ar og erum bara að bíða eft­ir því,“ seg­ir Eyrún enda hafði þeim verið sagt af starfs­manni Útlend­inga­stofn­un­ar að Revazi þyrfti ekki að yf­ir­gefa landið.

Hún seg­ir meðferð kær­u­nefnd­ar á mál­inu eiga að taka um 3-4 mánuði en nú sé liðnir rúm­lega það. Henni þyki þó lík­legt að þau séu byrjuð að skoða málið þar sem ný­lega hafi verið beðið um auka fylgigögn. 

Snýst um að þekkja rétta aðila

Aðspurð kveðst hún ekki telja um eins­dæmi að ræða að ein­stak­lingi með svo sterk tengsl sé vísað úr landi. Hún hafi heyrt frá ann­arri móður að Útlend­inga­stofn­un hefði tjáð henni að er­lend­ur barns­faðir henn­ar gæti bara hitt barnið á þriggja mánaða fresti. 

Einnig nefn­ir hún sem dæmi konu sem hafi lent í því í Leifs­stöð að eig­in­manni henn­ar og föður þriggja barna henn­ar hafi nær verið snúið aft­ur til Banda­ríkj­anna í Leifs­stöð. Það mál hafi hins veg­ar verið auðleyst vegna tengsla kon­unn­ar.  

„Ef þú þekk­ir ein­hvern þá ertu í betri stöðu en ef þú þekk­ir eng­an.“

Erfitt að ganga í gegn um meðgöng­una ein

Hún seg­ir aðstæðurn­ar gríðarlega erfiðar, sér­stak­lega vegna þess að hún þurfi nú að ganga í gegn um meðgöng­una ein. Ekk­ert liggi fyr­ir um hvenær málsmeðferð ljúki og von sé á dótt­ur þeirra 23. des­em­ber. 

„Það er erfitt að vera ein í þessu og maður veit ekki neitt. Fær hann að koma og vera á meðgöngu­tím­an­um sem ég þarf mest á hon­um að halda,“ seg­ir Eyrún en hún ótt­ast einnig að þurfa fæða dótt­ur­ina ein. 

Mér finnst líka verið að brjóta á rétt­ind­um barns­ins okk­ar, hún fær mögu­lega ekki að hitta pabba sinn fyrr en hún verður 7 vikna,“ en hún myndi þurfa að ferðast með dótt­ur­ina til að leyfa Revazi að hitta hana. 

Stund­um nóg að heyra rödd­ina hans

Hún seg­ir erfitt að plana og hlakka til þegar óviss­an hangi yfir henni. Hún hafi farið út með Revazi til Georgíu en á end­an­um þurft að snúa aft­ur heim til Íslands. Hún hafi grátið og hrokkið upp á nótt­unni við til­hugs­un­ina um að snúa aft­ur til Íslands án eig­in­manns­ins. 

Hún finni þó enn fyr­ir mikl­um stuðningi frá eig­in­mann­in­um þrátt fyr­ir að land og sjór aðskilji þau. 

„Hann er alltaf að róa mig að því ég er að fríka út,“ seg­ir Eyrún. „Stund­um er nóg bara að hlusta á talskila­boð og bara heyra rödd­ina.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert