Bjarndýr banaði konu í göngutúr Samúel Karl Ólason skrifar 3. maí 2021 19:22 Þessi tiltekni svartbjörn heldur til í Kanada. Árásir þeirra á menn eru mjög sjaldgæfar. Vísir/Getty Svartbjörn banaði 39 ára gamalli konu í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Er það í fjórða sinn sem björn banar manneskju í ríkinu frá 1960, þegar byrjað var að halda utan um slíkar upplýsingar.
Konan fór í göngutúr með tvo hunda sína en þegar kærasti hennar kom heim um kvöldið voru hundarnir tveir fyrir utan húsið sem þau bjuggu í og hún hvergi sjáanleg. Hundarnir voru enn með gönguólar og hóf maðurinn því leit að konunni. Hann fann lík hennar um klukkustund síðar. Í frétt Washington Post segir að birna og tveir húnar hennar hefir verið felld á svæðinu þar sem konan dó og rannsókn á innihaldi maga dýranna hafi sýnt fram á að þeir bönuðu konunni. Í grein Washington Post segir að sérfræðingar telji margar árásir bjarndýra á menn mega rekja til hunda. Ráðist hafi verið á menn sem hafi viljað bjarga hundum sínum frá bjarndýrum og í öðrum tilfellum hafi hundar rambað á bjarndýr og hlaupið aftur til eigenda sinna með bjarndýr á hælunum. Í tilkynningu frá yfirvöldum í Colorado segir um einstaklega sorglegt atvik sé að ræða, sem sé áminning varðandi það að birnir geti verið hættulegir. Svartbirnir eru í langflestum tilfellum hræddir við menn og hlaupa frá þeim. Áætlað er að um sautján til tuttugu þúsund svartbirni megi finna í Colorado. Í tilkynningunni kemur fram að hin atvikin þrjú, þar sem svartbjörn banaði fólki, hafi átt sér stað árið 2009, 1993 og 1971. Árið 1971 réðst gamall björn á nýbökuð hjón sem voru í útilegu. Björninn særði konuna og banaði manninum. Hann var svo felldur í kjölfarið og fannst plastfata í maga hans. Árið 1991 braut stór björn sér leið inn í húsbíl í ríkinu og banaði þar manni. Talið er að björninn hafi verið að leita sér að mat og eigandi bílsins skaut dýrið og reyndi að fella það. Það tókst honum þó ekki og fór sem fór. Björninn var felldur nokkrum dögum síðar. Ári 2009 banaði svartbjörn 74 ára konu skammt frá heimili hennar í Colorado og át hana. Þegar lögregluþjónar voru á vettvangi sáu þeir björn. Sá virtist ekkert óttast menn og nálgaðist þá, svo þeir felldu dýrið. Rannsókn á magainnihaldi bjarnarins sýndi ekki fram á með afgerandi hætti hvort dýrið hefði banað konunni. Næsta dag var stór björn felldur sem nálgaðist veiðiverði með ógnandi hætti. Mannahold og bútar úr fötum fundust í maga þess bjarnar og leiddi frekari rannsókn í ljós að konan hafði verið að gefa björnum að éta í bakgarði sínum.
Bandaríkin Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Sjá meira