Ekki marktækur munur á Höllu Hrund og Katrínu

Halla Hrund og Katrín Jakobsdóttir mælast með mest fylgi í …
Halla Hrund og Katrín Jakobsdóttir mælast með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu. Samsett mynd

Ekki er marktækur munur á stuðningi við Höllu Hrund Logadóttur og Katrínu Jakobsdóttur í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Halla Mælist með 29,7% fylgi en Katrín Jakobsdóttir með 26,7% fylgi. Aðrir frambjóðendur mælast með undir 19% fylgi.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

Aðeins fimm dagar eru liðnir frá því að síðasta könnun Maskínu kom út og vekur athygli að bæði Halla Hrund og Katrín standa nær alveg í stað frá því í síðustu könnun. Fyrir fimm dögum mældist Halla Hrund með 29,4% en Katrín með 26,8%.

Fylgi Jóns Gnarr heldur áfram að dala

Baldur Þórhallsson mælist með 18,9% fylgi og tapar einu prósentustigi á milli kannana. Fylgi Jóns Gnarr heldur áfram að dala og mælist hann nú með 11,2% fylgi.

Halla Tómasdóttir sækir í sig veðrið og mælist með 5,4% fylgi en í síðustu könnun Maskínu mældist hún með 3,7% fylgi. Arnar Þór Jónsson mælist með 4,2% fylgi sem er jafn mikið og í síðustu könnun.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir mælist með 1,2% fylgi en aðrir frambjóðendur mælast með innan við eitt prósentustig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert