„Geggjað að skora fyrsta markið sitt fyrir framan nítján þúsund manns“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. október 2021 13:01 Berglind Björg Þorvaldsdóttir fagnar marki sínu. Therese Back Berglind Björg Þorvaldsdóttir segir að það hafi verið einstök upplifun að spila fyrir framan tæplega nítján þúsund manns þegar lið hennar, Hammarby, vann AIK, 4-1, í Stokkhólmsslag í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Berglind skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum. Alls mættu 18.537 áhorfendur á leikinn sem er langmesti fjöldi sem hefur mætt á leik í sænsku kvennadeildinni. Gamla metið var frá 2008 en þá mættu 9.413 manns á leik Linköping og Umeå. 18 537 åskådare, nytt publikrekord i OBOS Damallsvenskan, fick se Hammarby städa av AIK och vinna med 4-1. pic.twitter.com/4oTAfS9Frx— Hammarby Fotboll (@Hammarbyfotboll) October 10, 2021 „Þetta var mjög stór stund, svo sannarlega,“ sagði Berglind í samtali við Vísi í dag. En hvernig tókst að fá svona marga á völlinn og bæta áhorfendametið um helming? „Við erum með svakalega stuðningsmenn sem styðja bæði við bakið á karla- og kvennaliðinu. Ákveðið var að spila leikinn á Tele2 vellinum og Hammarby og AIK eru svakalegir erkifjendur. Svo gekk miðasalan fáránlega vel og þetta var draumi líkast vel,“ sagði Berglind. Hur summerar vi detta då? #Bajen pic.twitter.com/MNc5XBGvNx— Hammarby Fotboll (@Hammarbyfotboll) October 10, 2021 Kvennalið Hammarby spilar heimaleiki sína á Hammarby IP sem tekur tæplega fjögur þúsund manns í sæti. „Það er yfirleitt alltaf fullt þar en ég hef ekki enn fengið að upplifa það vegna kórónuveirufaraldursins,“ sagði Berglind. Hún segir að það hafi verið ólýsanleg tilfinning spila leikinn í gær og hún gleymi þeirri upplifun seint. „Þetta var magnað. Þegar leikmenn labba í gegnum göngin syngja stuðningsmennirnir alltaf eitthvað Hammarby-lag og allir veifa treflunum sínum. Maður var með gæsahúð og stelpurnar sem eru uppaldar hjá Hammarby voru margar hverjar næstum því farnar að gráta. Þetta var geggjað,“ sagði Berglind. Hún valdi rétta leikinn til að skora sitt fyrsta mark fyrir Hammarby. Á 63. mínútu kom hún Hammarby í 3-1 með góðu skoti upp í þaknetið. Aðeins sex mínútum áður hafði AIK minnkað muninn í 2-1 svo mark Berglindar var mjög mikilvægt. Hún segir að leikurinn í gær hafi verið hennar besti fyrir Hammarby. +3 and my first goal in Damallsvenskan! Thanks to all 18.537 people that came! @ Tele2 Arena https://t.co/MZxterpCnV— Berglind Björg Thorvaldsdóttir (@berglindbjorg10) October 10, 2021 „Jú, algjörlega. Það hefur tekið tíma að komast inn í hlutina. Það er erfitt að koma inn í lið á miðju tímabili. En það gekk vel í þessum leik og geggjað að skora fyrsta markið sitt fyrir framan nítján þúsund manns,“ sagði Berglind en mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Eyjakonan gekk í raðir Hammarby frá Le Havre í Frakklandi. Hún hefur leikið sjö leiki fyrir Hammarby síðan hún kom til liðsins um miðjan ágúst. Berglind hafði nokkra kosti í stöðunni í sumar en leist best á Hammarby. „Þetta heillaði á þessum tíma svo ég ákvað að stökkva á þetta,“ sagði Berglind sem er samningsbundin Hammarby út næsta tímabil. Hún kann vel við sig hjá liðinu. Stemmningin á Tele2 leikvanginum var engu lík.Therese Back „Stokkhólmur er frábær borg og mér líður vel hérna,“ sagði Berglind. Hún hefur upplifað eitt og annað á atvinnumannaferlinum en segir vandasamt að bera Hammarby og sænska boltann saman við aðra staði sem hún hefur spilað á. „Fólk hefur oft spurt mig að þessu en það er ótrúlega erfitt að bera þetta saman. Þetta er allt öðruvísi. En það er gaman að upplifa öðruvísi menningu, spila með mismunandi leikmönnum og mismunandi taktík. Þetta eru algjör forréttindi að fá að upplifa þetta,“ sagði Berglind. Stort tack igen för en otrolig derbysöndag, allihop! #Bajen pic.twitter.com/OhMheGkSSh— Hammarby Fotboll (@Hammarbyfotboll) October 10, 2021 Hammarby er í 5. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 28 stig þegar þremur umferðum er ólokið. Hammarby er fjórum stigum frá 3. sætinu sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Og þangað dreymir Berglindi og stöllum hennar um að komast. „Markmiðið er enn að reyna að ná Evrópusætinu. Við eigum þrjá leiki eftir, ætlum að vinna þá og vona það besta,“ sagði Berglind. Berglind hleypur í átt til áhorfenda eftir markið.Therese Back Hammarby spilar ekki oftar á Tele2 leikvanginum á þessu tímabili en Berglind vonar að það verði reglulegur viðburður, sérstaklega þar sem það lukkaðist svona vel í gær. „Ég veit ekki hvort þetta er komið til að vera en ég vona það. Fyrst það gekk svona vel að selja miða og fá fólk á völlinn finnst mér að við ættum að fá fleiri leiki á Tele2 vellinum á næsta ári,“ sagði Berglind að lokum. Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Sænski boltinn Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira
Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Sænski boltinn Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira