Rúnar: Ákvörðunin er mín

Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Rúnar Páll Sigmundsson fráfarandi þjálfari Stjörnunnar hefur skrifað færslu á Facebook þar sem hann kveður Garðabæjarliðið en eins og fram kom fyrr í dag hætti hann óvænt störfum  eftir hádegið.

Þar segir Rúnar:

Allt hefur sinn tíma. Eftir níu frábær ár hjá Stjörnunni hef ég ákveðið að láta gott heita í bili. Árin mín hjá Stjörnunni hafa verið lærdómsrík og þroskandi – bæði fyrir mig og félagið. Ég er stoltur af því að hafa skrifað nýja kafla í sögu félagsins með því að stýra því til fyrsta meistaratitils í karlafótboltanum og Evrópuævintýrunum okkar eftirminnilegu. 

Það er von mín og vissa að framtíð Stjörnunnar sé björt. Mér er efst í huga þakklæti til núverandi og fyrrverandi leikmanna sem og stuðningsmanna Stjörnunnar. Ég vil þakka Stjörnumönnum fyrir tímann og traustið sem mér hefur verið sýnt. Ákvörðunin um að stíga til hliðar er ekki auðveld, en hún er mín og naut ég fulls skilnings á henni hjá félaginu. Ég kveð sáttur og bíð spenntur þeirra verkefna sem síðar kunna að bíða mín. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert