Lætur af störfum fyrir vestan

Dimitris Zacharias, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Vestra í körfuknattleik, hefur óskað eftri því að láta af störfum hjá félaginu og hefur stjórn körfuknattleiksdeildar félagsins orðið við þeirri ósk.

Grikkinn Zacharias er því á heimleið.

Vestri situr í botnsæti 1. deildar kvenna, 11. sæti, með 2 stig eftir að hafa aðeins unnið einn leik og tapað sjö þegar liðið hefur leikið átta leiki.

„Við viljum þakka Dimitris fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur,“ sagði í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Vestra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert