Fundu gosfara í svartaþoku eftir tveggja tíma leit Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 11:58 Björgunarsveitarfólk við störf á gossvæðinu. Svæðið á myndinni er nú komið undir hraun. Vísir/Vilhelm Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út í morgun til leitar að tveimur einstaklingum við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Svartaþoka og rigning var á svæðinu en eftir um tveggja klukkustunda leit fannst fólkið.
Báðir voru heilir á húfi, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. Lögreglan á Suðurnesjum minnir á að lífshættulegt er að stíga út á hraunið og þangað eigi aldrei að fara. Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Leið B er opin, hún er lengri (3-4 klst. fram og til baka) og nokkuð erfiðari en leið A með brattari brekku. Hún liggur að gígnum en þar er lítið að sjá eins og er þar sem lítil virkni er í gígnum og frá þessari hlið sést einungis á bakhlið gígsins. Einnig er hægt að ganga inn Nátthaga að hraunflæðinu (leið C). Það er stutt og auðveld leið (1 klst. fram og til baka). Frá Nátthaga má ganga áfram upp á Langahrygg og fá yfirsýn yfir gíg og gosvirkni síðustu mánaða. (1-2 klst. í viðbót) Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun. Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum. Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað. Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun: Suðvestlæg átt 5-13 m/s. Gasmengun berst einkum til norðausturs og gæti orðið vart við hana á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 10-18 m/s og rigning á morgun og gasmengunin mun fara til norðvesturs. Hægari og suðlægari átt annað kvöld. Bílastæði: Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri. Gönguleiðir: Gönguleiðir A og B eru stikaðar en B leiðin er sýnu erfiðust og lengst og hefur reynst mörgum erfið. Leið C er stutt og auðveld leið. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði. Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn. Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis. Loftmengun: Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi. Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara: • Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. • Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum. • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið. • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi. • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni. • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
Björgunarsveitir Eldgos í Fagradalsfjalli Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Fleiri fréttir Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Sjá meira