Stjórnarmyndunarviðræður í fullum gangi í Noregi Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2021 08:44 Jonas Gahr Støre reynir nú að mynda meirihlutastjórn með sósíalistum og Miðflokki. Takist það ekki gæti hann þurft að klambra saman minnihlutastjórn. Vísir/EPA Þrír flokkra af vinstri væng og miðju norskra stjórnmála koma saman til síns fyrsta fundar til að ræða mögulega stjórnarmyndun í dag. Framtíð olíuiðnaðarins, skattamál og samskiptin við Evrópusambandið eru talin helstu ágreiningsmál flokkanna.
Ríkisstjórn Ernu Solberg féll í þingkosningunum í Noregi fyrr í þessum mánuði. Verkamannaflokkurinn, Vinstri sósíalistar og Miðflokkurinn unnu meirihluta þingsæta. Fastlega er búist við því að Jonas Gahr Støre, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra. Gahr Støre hefur fundað með Trygve Slagsvold Vedum, leiðtoga Miðflokksins, og Auðun Lysbakken, leiðtoga sósíalista, hvorum í sínum lagi síðustu vikuna en í dag funda þeir allir saman í fyrsta skipti svo vitað sé, að sögn Reuters-fréttastofunnar. „Við höfum skýrt umboð til breytinga úr kosningunum og við ætlum að ræða hvernig við getum látið þær breytingar verða. Ég er mjög bjartsýnn á það,“ sagði Gahr Støre við fréttamenn. Leiðtogarnir eru sagðir ætla að ræða hvort tilefni sé til að hefja ítarlegri viðræður í næstu viku eða hvort að Gahr Støre þurfi mögulega að mynda minnihlutastjórn. Ýmis ágreiningsmál eru á milli flokkanna. Loftslagsmál og olíuframleiðsla Norðmanna voru ofarlega á baugi í kosningabaráttunni. Sósíalistar vilja hætta leit að nýjum olíulindum á norsku hafsvæði en bæði Verkamannaflokkurinn og Miðflokkurinn eru andsnúnir því. Síðarnefndu flokkarnir óttast atvinnumissi þegar fjarar undan olíuiðnaðinum og vilja heldur að ríkið ýti undir að verkfræðiþekking úr olíuvinnslu nýtist við framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Um fjörutíu prósent af útflutningstekjum Noregs koma frá útflutningi á olíu og gasi. Norðmenn framleiða nú um fjórar milljónir tunnur á dag en búist er við því að framleiðslan byrji að dragast saman eftir 2030.
Noregur Bensín og olía Loftslagsmál Þingkosningar í Noregi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira