Húsnæðismál Grindvíkinga í forgangi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga gríðarlega stóran atburð.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga gríðarlega stóran atburð. mbl.is/Óttar

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra seg­ir jarðhrær­ing­arn­ar á Reykja­nesskaga gríðarlega stór­an at­b­urð og um sé að ræða mjög erfiða tíma fyr­ir Grind­vík­inga. 

Þetta kom meðal ann­ars fram á upp­lýs­inga­fundi al­manna­varna í dag en þar sagði Katrín jafn­framt að mik­il­vægt væri að ís­lenskt sam­fé­lag sýndi úr hverju það væri gert og tæki vel utan um Grind­vík­inga þar sem þeir stæðu nú frammi fyr­ir því að sam­fé­lag þeirra væri dreift og ekki leng­ur á sama stað. 

Allt gert svo fólk kom­ist í skjól

Þá fór for­sæt­is­ráðherra yfir það að mik­il­vægt væri að fyr­ir­tæki stæðu með sínu starfs­fólki og að af­koma Grind­vík­inga væri tryggð til næstu þriggja mánaða. Nefndi hún í fram­hald­inu frum­varp þess eðlis sem þegar hef­ur verið dreift á Alþingi.  

Tók hún fram að hús­næðismál­in væru næsta stóra mál á dag­skrá en um væri að ræða 1.200 heim­ili sem þyrfti að huga að. Búið væri að kort­leggja það lausa hús­næði sem hægt væri að nýta og nú þegar hefðu 130 fengið hús­næði í gegn­um hús­næðisteymi stjórn­valda þó vissu­lega biðu aðrar 600 beiðnir frá Grind­vík­ing­um af­greiðslu.

Sagði Katrín að reikna mætti með að ástandið gæti varað áfram og því skipti máli að hafa skjól fyr­ir sig og sína. Einnig væri horft til lengri tíma og þá til upp­bygg­ing­ar á hús­næði fyr­ir Grind­vík­inga. Þá yrði allt gert til að fólk kæm­ist í skjól á meðan á þess­ari óvissu stæði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert