Dæmdur nauðgari áfram í gæsluvarðhaldi

Lögreglan rannsakar nú mögulegt þriðja brot Joshua.
Lögreglan rannsakar nú mögulegt þriðja brot Joshua. Ljósmynd/Eggert Jóhannesson

Gæsluvarðhald yfir Joshua Ikechukwu Mogbolu hefur verið framlengt til 26. janúar. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í samtali við mbl.is.

Mogbolu var nú á dögunum dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tvær nauðganir. En líkt og mbl.is greindi frá hefur hann verið kærður vegna gruns um þriðja kynferðisbrotið. 

Bylgja sagðist ekki vita hvort Joshua komi til með að, eða sé búinn að, áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurðinum. Málið er til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert