Tíu sem gætu sprungið út á Ólympíuleikunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. júlí 2021 12:02 Antony (Brasilía), Muto (Japan), Lainez (Mexíkó) og Amad (Fílabeinsströndin) gætu allir sprungið út á Ólympíuleikunum. Samsett/Getty Images Fótboltinn er byrjaður að rúlla á Ólympíuleikunum og því tók The Athletic saman hvaða tíu leikmenn karla megin gætu sprungið út á leikunum.
Takefusa Kubo, Japan Tvítugur Japani sem hefur verið bæði á mála hjá Barcelona og Real Madrid. Var í unglingaliði Börunga áður en hann fór aftur heim eftir að Barcelona var dæmt fyrir að brjóta lög er varðar kaup á leikmönnum undir 18 ára. Varð yngsti leikmaður J. League – úrvalsdeildarinnar – í Japan er hann spilaði fyrir Tokyo FC aðeins 15 ára, fimm mánaða og eins dags gamall. Met sem stendur enn. Real keypti hann sumarið 2019 en Kubo hefur verið kallaður japanski Messi. Diego Lainez, Mexíkó Lainez er 21 árs gamall vængmaður sem spilar fyrir Real Betis á Spáni. Er örvfættur og hefur gríðarlegan hraða. Var í byrjunarliðinu í 2-1 sigri Mexíkó á Íslandi fyrr á þessu ári. Hefur verið hjá Betis síðan 2019 en er ekki enn búinn að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður. Hefur spilað14 A-landsleiki og skorað þrjú mörk. Diego Lainez showed all his quality earlier today with a sublime run to set up one of Mexico's four goals.He's one of 10 young players I've written about who you should keep an eye on during the tournament.Stars of the future. #Olympics2021https://t.co/hldZHv77nB— Andy Jones (@adjones_journo) July 22, 2021 Lee Kang-in, Suður-Kórea Tvítugur sóknartengiliður sem spilar fyrir Valencia á Spáni. Skemmtilegur og lunkinn leikmaður sem er góður að finna svæði milli varnar og sóknar. Var valinn besti leikmaðurinn á HM U-20 ára landsliða árið 2019 en Suður-Kórea komst alla leið í úrslit á mótinu. Hefur spilað með aðalliði Valencia frá 2018 eftir að hafa verið átta ár þar á undan í akademíu liðsins. Hann er yngsti erlendi leikmaðurinn til að spila fyrir aðallið Valencia. Thiago Almada, Argentína Tvítugur Argentínumaður sem kemur úr sama hverfi og Carlos Tevez. Almada hefur verið líkt við landa sinn Lionel Messi þó það sé erfitt að feta í fótspor hans. Spilar með Velez Sarsfield í heimalandinu í dag en gæti farið til Evrópu áður en langt um líður. Er til að mynda orðaður við bæði Manchester-liðin. Takehiro Tomiyasu, Japan 22 ára gamall liðsfélagi Andra Fannars Baldurssonar hjá Bologna á Ítalíu. Varnarmaður sem var á sínum tíma boðið að koma í akademíu Barcelona en Tomiyasu ákvað að vera áfram í Japan. Er eftirsóttur mjög í dag og talið að Tottenham Hotspur fylgist vel með leikmanninum. Amad, Fílabeinsströndin 19 ára gamall vængmaður sem spilar með Manchester United. Gekk til liðs við félagið í janúar á þessu ári og lék nokkrar mínútur með liðinu það sem eftir lifði tímabilsins. Skoraði til að mynda fínt mark gegn AC Milan í Evrópudeildinni. Skemmtilegur örvfættur leikmaður sem leikur oftast nær úti á hægri vængnum. Hefur mikinn hraða og lágan þyngdarpunkt sem gerir hann erfiðan viðureignar fyrir varnarmenn. Antony, Brasilía 21 árs gamall vængmaður sem spilar fyrir Ajax í Hollandi. Ólst upp í fátækrahverfi í Brasilíu þar sem hann sá byssur, eiturlyf og margt þaðan af verra dag frá degi. Fótbolti var hans eina leið út. Var keyptur til Ajax síðasta sumar. Skoraði tíu mörk og lagði upp jafn mörg í 46 leikjum fyrir liðið sem varð deildar- og bikarmeistari. Timothee Pembele, Frakkland: 18 ára varnarmaður sem spilar með París-Saint Germain. Liberato Cacace, Nýja-Sjáland: Tvítugur vinstri bakvörður sem spilar með Sint-Truiden í Belgíu. Bruno Guimaraes, Brasilía: 23 ára varnarsinnaður miðjumaður sem spilar með Lyon í Frakklandi.
Fótbolti Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Leik lokið: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila Enski boltinn Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Enski boltinn Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Enski boltinn Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Enski boltinn Reyndi að líma fótinn sinn fastan í stúkunni Sport „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Körfubolti „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ Körfubolti Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Íslenski boltinn Líkir Havertz við Liverpool-hetju Enski boltinn Fleiri fréttir Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Í beinni: Aston Villa - Liverpool | Síðasti útileikur Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sveindís Jane á skotskónum í sigurleik Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Jafntefli eftir óvænt brotthvarf Óskars Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Sjá meira