Áhyggjur af stöðugum uppsögnum Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2021 17:16 Arion banki, Landsbankinn og Íslandsbanki hafa fækkað í starfsliði sínu á undanförnum árum. Vísir Stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hefur áhyggjur af stöðugum uppsögnum innan fjármálageirans og segir uppsagnir starfsmanna í engum takti við afkomu fyrirtækjanna undanfarin misseri.
Greint var frá því í gær að Íslandsbanki hafi ýmist sagt upp eða gert starfslokasamninga við 24 starfsmenn nú í september. Er þetta í fimmta skipti sem greint er frá uppsögnum hjá bankanum á rúmum tveimur árum. Hefur fækkað um minnst 92 í starfsliði bankans á tímabilinu. Þá vakti athygli þegar Arion banki sagði upp 102 starfsmönnum á einu bretti í september 2019. Bættust tæplega tuttugu við í maí á þessu ári. Yfir 27 var sagt upp störfum hjá Landsbankanum í fyrra og hafa minnst 94 misst starfið hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu SaltPay frá því að það tók yfir rekstur Borgunar. Hógværar launakröfur spilað þátt í góðri arðsemi Stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja fordæmir aðgerðir bankanna í tilkynningu á vef sínum og bendir á að stóru viðskiptabankarnir hafi getað vel við unað síðustu ár. „Hagnaður bankanna er ágætur miðað við aðstæður og batnar enn frekar nú þegar þjóðfélagið kemst út úr takmörkunum á frelsi einstaklinga og fyrirtækja. Ein aðal ástæða betri afkomu fjármálafyrirtækja eru afar hógværir kjarasamningar sem SSF gerði við viðsemjendur sína, [Samtök fjármálafyrirtækja] og [Samtök atvinnulífsins].“ Friðbert Traustason, formaður SSF, segir að hugur stjórnar og starfsmanna skrifstofu SSF sé hjá starfsmönnum sem sagt hefur verið upp. „Hugur okkar er fyrst og fremst hjá þeim starfsmönnum sem eru að missa lífsviðurværi sitt.“ Mikil fækkun hefur verið í starfsliði viðskiptabankanna síðustu ár samhliða fækkun útibúa og aukinni notkun sjálfsafgreiðslulausna. „Það er alltaf verið að leita að einhverjum leiðum til að leiða til enn frekari hagræðingar hjá bankanum. Það er verið að reyna að sjá til þess að reksturinn sé góður og í takti við arðsemiskröfu sem er gerð til rekstrarins,“ sagði Björn Berg Gunnarsson, starfandi samskiptastjóri Íslandsbanka, aðspurður um það í gær hvers vegna gripið hafi verið til uppsagna.
Íslenskir bankar Vinnumarkaður Tengdar fréttir Uppsagnir hjá Arion banka Tæplega 20 starfsmönnum Arion banka var sagt upp í dag vegna hagræðingar og þjónustubreytinga á höfuðborgarsvæðinu. 25. maí 2021 13:51 Fækkar um 24 í starfsliði Íslandsbanka Fækkað verður um 24 starfsmenn í starfsliði Íslandsbanka í september. Um helmingi þeirra hefur verið sagt upp störfum en samið hefur verið við aðra um snemmbúin starfslok. 14. september 2021 10:26 55 bættust í hóp þeirra sem hafa misst vinnuna hjá SaltPay Alls var um 55 starfsmönnum greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay, sem áður bar nafnið Borgun, sagt upp í gær. Um 130 störfuðu hjá fyrirtækinu hér á landi. 21. apríl 2021 09:55 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Samstarf Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Viðskipti innlent Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Samstarf „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Sjá meira
Uppsagnir hjá Arion banka Tæplega 20 starfsmönnum Arion banka var sagt upp í dag vegna hagræðingar og þjónustubreytinga á höfuðborgarsvæðinu. 25. maí 2021 13:51
Fækkar um 24 í starfsliði Íslandsbanka Fækkað verður um 24 starfsmenn í starfsliði Íslandsbanka í september. Um helmingi þeirra hefur verið sagt upp störfum en samið hefur verið við aðra um snemmbúin starfslok. 14. september 2021 10:26
55 bættust í hóp þeirra sem hafa misst vinnuna hjá SaltPay Alls var um 55 starfsmönnum greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay, sem áður bar nafnið Borgun, sagt upp í gær. Um 130 störfuðu hjá fyrirtækinu hér á landi. 21. apríl 2021 09:55