Harma að konur hafi sætt ítarlegri læknisskoðun á flugvellinum í Doha Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. október 2020 15:00 Frá Hamad-alþjóðaflugvellinum í Doha. Getty/Exithamster/Barcroft Media
Ríkisstjórnin í Katar harmar að konur hafi verið látnar sæta ítarlegri læknisskoðun á flugvellinum í Doha þann 2. október síðastliðinn. Læknisskoðanir á konunum voru gerðar eftir að ungabarn fannst falið í ruslatunnu á salerni á flugvellinum. Yfirvöld í Katar segjast hafa verið að leita að móður barnsins. Fyrst var greint frá málinu í áströlskum fjölmiðlum á sunnudag. Ástralska ríkisstjórnin staðfesti svo í dag að átján konum sem voru á leið með flugi frá Doha til Sydney hefði verið gert að sæta læknisskoðun á alþjóðaflugvelli borgarinnar. Þar af voru þrettán ástralskar konur en talið er fleiri konur sem komnar voru um borð í níu aðrar flugvélar hafi einnig verið gert að sæta læknisskoðun. Þjóðerni þeirra eða hversu margar þær nákvæmlega eru hefur ekki komið fram. Að því er fram kemur í frétt Guardian var farið með konurnar í sjúkrabíl. Ein lýsti því að hún hefði talið að skima ætti fyrir kórónuveirunni. Læknir þreifaði yfir kvið og neðri kvið Konurnar voru hins vegar látnar afklæðast að neðan þegar í sjúkrabílinn var komið. Kvenkyns læknir skoðaði þær síða með því að þreifa á þeim yfir kvið og neðri kvið. Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, segir málið skelfilegt og óásættanlegt. Hann segir að ríkisstjórnin muni halda áfram að krefjast svara frá yfirvöldum í Katar, meðal annars til að tryggja að svona nokkuð gerist ekki aftur. Stjórnarandstaðan í Ástralíu hefur gagnrýnt viðbrögð ríkisstjórnarinnar við málinu. Segir stjórnarandstaðan að yfirvöld í Katar hafi beitt konurnar kynferðislegu ofbeldi en ástralska ríkisstjórnin hefur hingað til ekki viljað ganga svo langt í yfirlýsingum sínum. Staða kvenna í Katar löngum verið gagnrýnd Katarska ríkisstjórnin sagðist í yfirlýsingu sinni harma óþægindi kvennanna vegna málsins. Ákvörðun um að gera ítarlegar læknisskoðanir á konunum hafi verið tekin til þess að reyna að koma í veg fyrir að sá sem skildi barnið eftir í ruslatunnunni kæmist undan. Í Katar er ólöglegt að stunda kynlíf utan hjónabands. Í yfirlýsingunni heitir ríkisstjórnin því að rannsaka málið ítarlega og deila niðurstöðum þeirrar rannsóknar á alþjóðavettvangi. Staða kvenna í Katar hefur löngum verið gagnrýnd af mannréttindasamtökum. Á meðal þess sem samtökin Human Rights Watch hafa gagnrýnt er að í hegningarlögum landsins er ekki að finna ákvæði um að heimilisofbeldi eða nauðgun í hjónabandi sé refsivert. Þá kveða lög í Katar á um að eiginkona sé ábyrg fyrir því að sjá um eiginmann sinn og skuli hlýða honum.
Katar Ástralía Fréttir af flugi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira