Fórst eftir að hafa kastað barni sínu í öruggt skjól Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. júlí 2021 10:23 Stúlkunni var bjargað sólarhring eftir að aurskriða féll á heimili hennar. Skjáskot Kona sem kastaði barni sínu í öruggt skjól rétt áður en aurskriða féll á heimili hennar í Kína er dáin. Barnungri dóttur hennar var bjargað af björgunarsveitarmönnum á miðvikudag, sólarhring eftir að aurskriðan féll á heimilið.
Úrhellisrigning hefur orsakað hamfaraflóð í miðju Kína undanfarna daga og féll aurskriða á bæinn Wangzongian í Henen héraði í gær vegna úrhellisins. Sérfræðingar segja að meiri rigningar hafi ekki fallið í Kína í þúsund ár og segja að rigningarnar sem hafi fallið samsvari rigningum sem falla í venjulegu árferði á heilu ári. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins hafa minnst 51 farist í flóðunum og 400 þúsund hafa þurft að flýja heimili sín. Myndband af björguninni hefur farið eins og eldur í sinu um netmiðla í Kína. Talið er að stúlkan sé þriggja eða fjögurra mánaða gömul. „Ég heyrði barnið gráta og stuttu síðar voru björgunaraðilar mættir og náðu að bjarga barninu. Henni hafði verið kastað upp í rjáfur af móður hennar,“ sagði fjölskyldumeðlimur stúlkunnar í samtali við staðarmiðil í Kína. Brunað var með stúlkuna á sjúkrahús en hún reyndist ómeidd. Lík móður hennar fannst í gær og segja björgunaraðilar í samtali við Beijing Youth Daily að lík hennar hafi verið frosið í stellingu eins og hún hafi verð að lyfta einhverju upp fyrir höfuð sér.
Kína Náttúruhamfarir Tengdar fréttir Þúsundir í sjálfheldu án drykkjarvatns Þúsundir eru í sjálfheldu í miðhluta Kína vegna hamfaraflóða síðustu daga. Minnst 33 hafa farist í flóðunum en talið er að enn fleiri muni finnast látnir þegar björgunarsveitum tekst að komast að vegum og göngum sem hafa verið á floti undanfarna viku. 23. júlí 2021 07:25 Mikil hræðsla þegar lestarvagn fylltist af flóðvatni Mikil hræðsla greip um sig í neðanjarðarlestarkerfi Zhengzhou, höfuðborg Henan-héraðs, í gær þegar vatn tók að flæða stjórnlaust inn í vagna í kjölfar gríðarmikilla flóða af völdum gífurlegrar rigningar undanfarna daga. 21. júlí 2021 23:05 Hátt í þrjátíu hafa farist í flóðum í Kína Kínverski herinn hefur sprengt upp stíflu til að losa um uppsafnað vatn, sem ógnar lífi íbúa í einu fjölmennasta héraði landsins. Minnst 25 hafa látist í flóðunum. 21. júlí 2021 14:28 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Fleiri fréttir Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Sjá meira
Þúsundir í sjálfheldu án drykkjarvatns Þúsundir eru í sjálfheldu í miðhluta Kína vegna hamfaraflóða síðustu daga. Minnst 33 hafa farist í flóðunum en talið er að enn fleiri muni finnast látnir þegar björgunarsveitum tekst að komast að vegum og göngum sem hafa verið á floti undanfarna viku. 23. júlí 2021 07:25
Mikil hræðsla þegar lestarvagn fylltist af flóðvatni Mikil hræðsla greip um sig í neðanjarðarlestarkerfi Zhengzhou, höfuðborg Henan-héraðs, í gær þegar vatn tók að flæða stjórnlaust inn í vagna í kjölfar gríðarmikilla flóða af völdum gífurlegrar rigningar undanfarna daga. 21. júlí 2021 23:05
Hátt í þrjátíu hafa farist í flóðum í Kína Kínverski herinn hefur sprengt upp stíflu til að losa um uppsafnað vatn, sem ógnar lífi íbúa í einu fjölmennasta héraði landsins. Minnst 25 hafa látist í flóðunum. 21. júlí 2021 14:28