Biden ætlar að ræða við Zelensky um orrustuþotur
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag ætla að ræða við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, um beiðni Úkraínu um að fá send háþróuð vopn til að verjast gegn árásum Rússa.
Í gær neitaði Biden afdráttarlaust, þegar blaðamenn spurðu hann hvort hann hygðist senda F-16 orrustuþotur til Úkraínu. „Við munum ræða málin,“ sagði hann hins vegar í dag.
Mörg ríki á Vesturlöndum hafa ákveðið að útvega Úkraínumönnum vopn. Sum hafa þegar gert það. Sendingarnar innihalda allt frá byssum og skotfærum upp í skriðdreka.
Bandaríkin hafa þó þegar útvegað Úkraínumönnum fleiri vopn og búnað en önnur ríki.
Zelensky hefur undanfarið kallað eftir enn öflugri og fullkomnari vopnum, þar sem ekkert fararsnið virðist vera á innrásarliði Rússa.
Úkraínumenn eru sérstaklega á höttunum eftir orrustuþotum og langdrægum eldflaugum, sem gætu hæft skotmörk langt aftan við víglínuna.
Bæði Bandaríkin og Þýskaland fylgdu fordæmi Breta nýverið og samþykktu að senda háþróaða skriðdreka til Úkraínu.
Í dag sagði fulltrúi pólska varnarmálaráðherrans að Pólland ætti ekki í neinum formlegum viðræðum um að senda einhverjar af sínum eigin F-16 orrustuþotum til Úkraínu. Pólland hefur reynst öflugur bandamaður Úkraínu og hefur hvatt til vopnasendinga Vesturlanda.