Þegar Mbappé sagði hæ við heiminn á Etihad Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2021 13:30 Kylian Mbappé skorar fyrsta Meistaradeildarmark sitt á ferlinum, gegn Manchester City í febrúar 2017. getty/Alex Livesey Kylian Mbappé mætir í kvöld á völlinn þar sem hann skoraði sitt fyrsta Meistaradeildarmark á ferlinum, Etihad, og kynnti sig almennilega fyrir fótboltaheiminum. Þegar Mbappé skoraði fyrsta Meistaradeildarmarkið sitt 2017 var hann átján ára leikmaður Monaco. Núna, vorið 2021, er Mbappé 22 ára leikmaður Paris Saint-Germain, heimsmeistari með Frakklandi, verðlaunum og viðurkenningum hlaðinn og einn besti leikmaður heims. Leikur City og Monaco í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar 21. febrúar 2017 er með þeim eftirminnilegri í keppninni á síðustu árum. City vann leikinn, 5-3, en mörkin þrjú sem Monaco skoraði á Etihad reyndust dýrmæt. Raheem Sterling kom City yfir á 26. mínútu eftir undirbúning Leroys Sané. Falcao, félagi Mbappés í framlínu Monaco, jafnaði sex mínútum síðar þegar hann kastaði sér fram og skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Fabinho. Mbappé og Falcao mynduðu frábært framherjapar hjá Monaco tímabilið 2016-17.getty/Alex Livesey Á 40. mínútu var svo komið að Mbappé. Hann fékk þá sendingu inn fyrir vörn City frá Fabinho, stakk Nicolás Otamendi af og skoraði framhjá Willy Caballero í marki heimamanna. Þetta var fyrsta Meistaradeildarmark Mbappés. Þau eru nú orðin 27 og á eftir að fjölga mikið á næstu árum. Fimm mörk litu dagsins ljós í seinni hálfleiknum á Etihad auk þess sem Willy varði vítaspyrnu frá Falcao. Kólumbíumaðurinn skoraði reyndar glæsilegt mark á 61. mínútu og kom Monaco í 2-3 en City skoraði síðustu þrjú mörk leiksins og vann, 5-3. Það dugði þó ekki til því Monaco vann seinni leikinn á Stade Louis II, 3-1, og fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Mbappé kom Monaco á bragðið strax á 8. mínútu og Fabinho jók muninn í 2-0 á 29. mínútu. Sané minnkaði muninn á 71. mínútu en sex mínútum síðar skoraði Tiémoué Babayoko markið sem kom Monaco í átta liða úrslitin. Monaco komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar og varð franskur meistari. Eftir tímabilið fóru stærri félög að kroppa í leikmenn Monaco. City keypti Bernardo Silva og Benjamin Mendy, Chelsea Babayoko og PSG krækti í Mbappé. Hann hefur skorað 106 mörk í 123 leikjum fyrir PSG og unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu, nema Meistaradeildina. PSG komst í úrslit hennar í fyrra en tapaði fyrir Bayern München, 1-0. Rúben Dias og félagar í vörn Manchester City höfðu góðar gætur á Mbappé í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain.getty/Alex Grimm PSG á nú tækifæri á að endurtaka leikinn en til þess að það gerist þarf liðið að snúa 1-2 tapi í fyrri leiknum á Parc des Princes sér í vil. PSG var yfir í hálfleik en City tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Mbappé hefur glímt við meiðsli í aðdraganda leiksins og enn er ekki alveg ljóst hvort hann spilar ef marka má orð Mauricios Pochettino, knattspyrnustjóra PSG. En Mbappé þyrfti væntanlega að vera ógöngufær til að koma ekki við sögu í þessum mikilvæga leik. Leikur Man. City og PSG hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport og hann verður svo gerður upp í Meistaradeildarmessunni klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Meistaradeild Evrópu Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Sjá meira
Þegar Mbappé skoraði fyrsta Meistaradeildarmarkið sitt 2017 var hann átján ára leikmaður Monaco. Núna, vorið 2021, er Mbappé 22 ára leikmaður Paris Saint-Germain, heimsmeistari með Frakklandi, verðlaunum og viðurkenningum hlaðinn og einn besti leikmaður heims. Leikur City og Monaco í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar 21. febrúar 2017 er með þeim eftirminnilegri í keppninni á síðustu árum. City vann leikinn, 5-3, en mörkin þrjú sem Monaco skoraði á Etihad reyndust dýrmæt. Raheem Sterling kom City yfir á 26. mínútu eftir undirbúning Leroys Sané. Falcao, félagi Mbappés í framlínu Monaco, jafnaði sex mínútum síðar þegar hann kastaði sér fram og skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Fabinho. Mbappé og Falcao mynduðu frábært framherjapar hjá Monaco tímabilið 2016-17.getty/Alex Livesey Á 40. mínútu var svo komið að Mbappé. Hann fékk þá sendingu inn fyrir vörn City frá Fabinho, stakk Nicolás Otamendi af og skoraði framhjá Willy Caballero í marki heimamanna. Þetta var fyrsta Meistaradeildarmark Mbappés. Þau eru nú orðin 27 og á eftir að fjölga mikið á næstu árum. Fimm mörk litu dagsins ljós í seinni hálfleiknum á Etihad auk þess sem Willy varði vítaspyrnu frá Falcao. Kólumbíumaðurinn skoraði reyndar glæsilegt mark á 61. mínútu og kom Monaco í 2-3 en City skoraði síðustu þrjú mörk leiksins og vann, 5-3. Það dugði þó ekki til því Monaco vann seinni leikinn á Stade Louis II, 3-1, og fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Mbappé kom Monaco á bragðið strax á 8. mínútu og Fabinho jók muninn í 2-0 á 29. mínútu. Sané minnkaði muninn á 71. mínútu en sex mínútum síðar skoraði Tiémoué Babayoko markið sem kom Monaco í átta liða úrslitin. Monaco komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar og varð franskur meistari. Eftir tímabilið fóru stærri félög að kroppa í leikmenn Monaco. City keypti Bernardo Silva og Benjamin Mendy, Chelsea Babayoko og PSG krækti í Mbappé. Hann hefur skorað 106 mörk í 123 leikjum fyrir PSG og unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu, nema Meistaradeildina. PSG komst í úrslit hennar í fyrra en tapaði fyrir Bayern München, 1-0. Rúben Dias og félagar í vörn Manchester City höfðu góðar gætur á Mbappé í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain.getty/Alex Grimm PSG á nú tækifæri á að endurtaka leikinn en til þess að það gerist þarf liðið að snúa 1-2 tapi í fyrri leiknum á Parc des Princes sér í vil. PSG var yfir í hálfleik en City tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Mbappé hefur glímt við meiðsli í aðdraganda leiksins og enn er ekki alveg ljóst hvort hann spilar ef marka má orð Mauricios Pochettino, knattspyrnustjóra PSG. En Mbappé þyrfti væntanlega að vera ógöngufær til að koma ekki við sögu í þessum mikilvæga leik. Leikur Man. City og PSG hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:15 á Stöð 2 Sport og hann verður svo gerður upp í Meistaradeildarmessunni klukkan 21:00. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Sjá meira