Hlynur úr leik í Skotlandi

Hlynur Bergsson, kylfingur úr GKG, er úr leik á Opna …
Hlynur Bergsson, kylfingur úr GKG, er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu. Ljósmynd/seth@golf.is

Hlynur Bergsson, kylfingur úr GKG, er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í Inverness í Skotlandi eftir tap gegn Skotanum Calum Scott í 32-manna úrslitum mótsins í morgun.

Holukeppni var leikin og hafði Scott hafði betur á 19. holu.

Hlynur sigraði Wales-verjann Matt Roberts í fyrstu umferð mótsins í gær en þurfti að lúta í lægra haldi í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert