Örlagarík frammistaða Ingu Sæland kvöldið fyrir kosningar Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. september 2021 12:00 Inga Sæland beygði af í kappræðum leiðtoganna á RÚV kvöldið fyrir kosningar. Hafsteinn telur frammistöðu hennar hafa skipt sköpum fyrir stuðning við Flokk fólksins í kosningunum. Skoðanakannanir fyrir alþingiskosningar 2016 og 2017 vanmátu Sjálfstæðisflokkinn og Flokk fólksins - en fylgi Pírata og Samfylkingarinnar reyndist ofmetið. Þetta sýnir samanburður doktorsnema í félagstölfræði. Miklar fylgisbreytingar geti orðið síðustu viku kosningabaráttunnar - frammistaða í sjónvarpi kvöldið fyrir kosningar geti jafnvel skipt sköpum.
Hafsteinn Einarsson doktorsnemi í félagstölfræði við Manchester-háskóla bar á dögunum saman niðurstöður síðustu skoðanakannana fyrir alþingiskosningar 2016 og 17 við niðurstöður kosninganna sjálfra. Í ljós kom að kannanir muni spá nokkurn veginn rétt fyrir um fylgi flestra flokka - en skekkju sé að vænta hjá einstaka flokkum. Píratar voru þannig ofmetnir um næstum 5 prósent 2016 en Sjálfstæðisflokkurinn vanmetinn um 3 prósent. „Svo 2017 þá er það Flokkur fólksins, hann var vanmetinn dálítið mikið, 2,5 prósent sirka, Fjálfstæðisflokkur og Framsókn 2 prósent en á móti voru vinstri flokkarnir, Samfylking og Vinstri grænir, ofmetin aðeins,“ segir Hafsteinn. Ýmislegt geti skýrt þetta; ungt fólk sem líklegra er til að kjósa til vinstri mæti síður á kjörstað. Þá geti hrein tilviljun geti einnig ráðið niðurstöðum, eða að eitthvað gerist eftir að könnunum ljúki. Hátt hlutfall Íslendinga ákveði ekki hvað skuli kjósa fyrr en á kjördag. „Ég er til dæmis alveg sannfærður um það að 2017 þá átti frammistaða Ingu Sæland í lokasjónvarpsþættinum, hún jók fylgi hennar,“ segir Hafsteinn og vísar þar til eftirminnilegra leiðtogakappræðna 27. október 2017, kvöldið fyrir kosningar, þegar Inga beygði af í beinni útsendingu. Þó að kosningabaráttan í ár hafi verið stöðugri en í síðustu kosningum kæmi það Hafsteini ekki á óvart að fylgi flokkanna breytist alveg fram á kjördag. En hvaða flokkar heldur Hafsteinn að standi uppi sem sigurvegarar þegar talið hefur verið uppi úr kjörkössunum? „Það hefur aðeins verið að gefa eftir fylgi ríksstjórnarinnar síðustu daga en við skulum alls ekki afskrifa það að þau sæki í sig veðrið og haldi meirihluta á lokametrunum. En hver vinnur, það er ómögulegt að spá fyrir um það,“ segir Hafsteinn. Samanburð Hafsteins má nálgast í heild hér.
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Flokkur fólksins Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Sjá meira