Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó Samúel Karl Ólason skrifar 22. mars 2023 10:48 Þegar mest var héldu tíu manns Irvo Otieno niðri. Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó.
Otieno, sem var 28 ára gamall og átti við geðræn vandamál að stríða, hafði verið tekinn af heimili sínu þann 3. mars. Þremur dögum síðar, eða þann 6. mars, var verið að flytja hann á sjúkrahús í Dinwiddiesýslu í Virginíu en hann var þá bundinn á bæði höndum og fótum. Þegar Otieno streittist á móti lögregluþjónum var honum haldið niðri þar til hann dó. Á myndbandinu má sjá að á einum tímapunkti voru tíu manns, lögregluþjónar og heilbrigðisstarfsmenn að halda Otieno niðri. Þar á meðal nokkrir sem voru með hné sín á honum. Blaðamenn Washington Post komu höndum yfir myndbandið sem gert var úr upptökum úr öryggismyndavél á sjúkrahúsinu og var notað við þá ákvörðun að ákæra fólkið. Myndbandið var svo birt í kjölfarið. Það sýnir hvernig Otieno var haldið niðri í ellefu mínútur, þar til tekið var eftir því að hjarta hans var hætt að slá. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Vert er að vara lesendur við því að myndbandið getur vakið óhug. Málið minnir mjög á dauða George Floyd og annarra þeldökkra manna sem dáið hafa í haldi lögreglunnar í Bandaríkjunum. Otieno var handtekinn þann 3. mars, eftir að hann hafði rifið upp ljós í garði nágranna móður sinnar og bankað á dyrnar þar. Hann var fluttur á sjúkrahús um tíma, þar sem leggja átti hann inn á geðdeild í þrjá sólarhringa, en fluttur í fangelsi eftir að lögreglan segir að hann hafi orðið ofbeldisfullur. Fjölskylda Otieno mótmælti því og sagði hann hafa verið rólegan og hafa lögmenn fjölskyldunnar, þeir sömu og aðstoðuðu fjölskyldu George Floyd, gagnrýnt að Otieno hafi ekki fengið að verja þremur sólarhringum á geðdeildinni. Caroline Ouko, móðir Irvo Otieno, með mynd af syni sínum. Vinstra megin við hana er lögmaður Ben Crump og hægra megin er eldri sonur hennar Leon Ochieng og lögmaðurinn Mark Krudys.AP/Daniel Sangjib Min Eftir þriggja daga fangelsisvist, þar sem lögmenn fjölskyldunnar segja að hann hafi verið beittur piparúða og ekki leyft að skola augun og þar að auki hafi hann ekki fengið lyf sín, sem móðir hans hafi reynt að koma til hans, var hann fluttur aftur á sjúkrahúsið. Lögmenn fjölskyldunnar segja að myndbandsupptökur úr fangelsinu sýni lögregluþjóna ryðjast inn í klefa Otieno, þar sem hann sat nakinn og dregið hann út. Hann var svo fluttur á sjúkrahúsið þar sem hann dó, eins og áður hefur verið sagt frá. NPR hefur eftir Ann Cabell Baskervill, héraðssaksóknaranum, að Otieno hafi kafnað til bana. Þá sagði hún að á milli þess sem Otieno dó og að ríkislögregla Virginíu var látin vita hafi handjárn Otieno verið fjarlægð og lík hans hreyft og þrifið. Þá var ekki hringt eftir réttarmeinafræðingi heldur haft beint samband við útfararstofnun. Þar að auki sagði Baskervill að enginn lögregluþjónanna hefði sagt rétt frá hvað gerðist, hvorki þann dag sem Otieno dó, né þegar þeir voru handteknir.
Bandaríkin Dauði George Floyd Tengdar fréttir Dró mann út úr bíl fyrir að gleypa pillu og skaut hann Lögregluþjónn dró hinn 32 ára gamla Richard Ward út úr bíl móður hans í fyrra og skaut hann þrisvar sinnum í bringuna. Tilefnið virðist hafa verið að Ward stakk upp í sig pillu eftir að hann lýsti því yfir að hann yrði stressaður í návígi við lögregluþjóna. 24. febrúar 2023 14:57 Lögregluþjónarnir lýsa yfir sakleysi Fyrrverandi lögregluþjónarnir fimm sem ákærðir hafa verið fyrir að berja Tyre Nichols til bana, lýstu allir yfir sakleysi sínu í dómsal. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir mættu í dómsal eftir dauða Nichols, sem vakti mikla athygli og reiði um gervöll Bandaríkin. 17. febrúar 2023 16:19 Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. 28. janúar 2023 10:33 Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira
Dró mann út úr bíl fyrir að gleypa pillu og skaut hann Lögregluþjónn dró hinn 32 ára gamla Richard Ward út úr bíl móður hans í fyrra og skaut hann þrisvar sinnum í bringuna. Tilefnið virðist hafa verið að Ward stakk upp í sig pillu eftir að hann lýsti því yfir að hann yrði stressaður í návígi við lögregluþjóna. 24. febrúar 2023 14:57
Lögregluþjónarnir lýsa yfir sakleysi Fyrrverandi lögregluþjónarnir fimm sem ákærðir hafa verið fyrir að berja Tyre Nichols til bana, lýstu allir yfir sakleysi sínu í dómsal. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir mættu í dómsal eftir dauða Nichols, sem vakti mikla athygli og reiði um gervöll Bandaríkin. 17. febrúar 2023 16:19
Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. 28. janúar 2023 10:33