Mourinho þurfti að kaupa fokdýra skó fyrir hetju Roma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. nóvember 2021 15:31 José Mourinho þurfti að skreppa í skóbúð í morgun. getty/getty José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, þarf að efna loforð sem hann gaf Felix Afena-Gyan, hetju liðsins gegn Genoa, og kaupa rándýra skó handa honum.
Afena-Gyan kom inn á sem varamaður á 75. mínútu í leik Genoa og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Þá var staðan markalaus. Afena-Gyan var ekki lengi að láta að sér kveða því á 82. mínútu kom hann Rómverjum yfir. Hann bætti svo öðru marki við í uppbótartíma. Afena-Gyan er fyrsti leikmaðurinn sem er fæddur 2003 sem skorar í ítölsku úrvalsdeildinni. Ganverjinn er jafnframt þriðji yngsti erlendi leikmaður til að skora í ítölsku úrvalsdeildinni á eftir Valeri Bojinov (sautján ára og 337 daga) og Alexandre Pato (átján ára og 147 daga). Afena-Gyan var átján ára og 306 daga þegar hann skoraði mörkin tvö í gær. Felix Afena-Gyan skoraði sín fyrstu mörk fyrir aðallið Roma í gær.getty/Danilo Vigo Afena-Gyan fagnaði fyrra marki sínu með Mourinhos og minnti hann á loforð sem hann hafði gefið honum. „Ég hafði lofað Felix að kaupa handa honum skó sem hann langar í. Þeir eru mjög dýrir og kosta átta hundruð evrur. Hann hljóp til mín og minnti mig á það! Það fyrsta sem ég geri á morgun er að kaupa skóna handa honum,“ sagði Mourinho eftir leikinn í gær. Afena-Gyan kom til Roma frá EurAfrica í heimalandinu í mars á þessu ári. Leikurinn í gær var hans þriðji fyrir aðallið Roma. Með sigrinum í gær komst Roma upp í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Ítalski boltinn Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar Körfubolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Sjá meira