„Hann er með eiginleika sem er erfitt að kenna“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. desember 2022 11:00 Matthías Orri Sigurðarson er einn af sérfræðingum Subway Körfuboltakvölds og hann hefur verið hrifinn af frammistöðu Sigurðar Péturssonar leikmanns Breiðabliks. Vísir Hinn tvítugi Sigurður Pétursson hefur heillað marga í Subway-deildinni á þessu tímabili. Strákarnir í Subway Körfuboltakvöldi fóru yfir frammistöðu Sigurðar í þættinum á föstudagskvöldið.
Breiðablik hefur verið spútniklið tímabilsins í Subway-deildinni hingað til en liðið er jafnt Val og Keflavík að stigum á toppi deildarinnar. Sigurður Pétursson hefur verið einn af lykilmönnum Breiðabliks en þessi tvítugi strákur er með níu stig, fimm fráköst og tólf framlagsstig að meðaltali í vetur. Þeir Kjartan Atli Kjartansson, Matthías Orri Sigurðarson og Brynjar Þór Björnsson ræddu Sigurð í síðasta þætti af Subway Körfuboltakvöldi. Kjartan Atli sagði að Sigurður væri gott dæmi um það sem á ensku er kallað „late bloomer“, það er einhver sem springur út seinna en margir aðrir. „Hann er svona eins og lítill Rottweiler hvolpur, þú sérð að hann á eftir að verða að risastórum hundi,“ sagði Kjartan Atli. „Maður sér það viku fyrir viku að hann er að ná að fylla upp í þennan frábæra ramma sem hann er með. Hann er fljótur á fæti, hoppar hátt og hreyfir sig mjög vel. Hann er með eiginleika sem er erfitt að kenna, hann leggur sig mikið fram og er bara harður,“ bætti Matthías við og sagði að í fyrra hafi fólk fyrst almennilega byrjað að taka eftir Sigurði á vellinum. „Hann var alveg tilbúinn nítján ára gamall að rífa kjaft við hvern einasta mann sem hann var að dekka, hann var ekki hræddur við neitt. Þegar hann fer að hitta þriggja stiga skotunum þá er hann mjög nothæfur leikmaður,“ bætti Matthías Orri við. Alla umræðu þeirra félaga má sjá í spilaranum hér fyrir neðan þar sem meðal annars er farið yfir líkindi Sigurðar og föður hans Péturs Ingvarssonar sem einmitt er þjálfari Breiðabliks. Klippa: Subway Körfuboltakvöld um Sigurð Pétursson
Subway-deild karla Körfuboltakvöld Breiðablik Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik