Kæru Frelsis og ábyrgðar á hendur Lyfjastofnun vísað frá Árni Sæberg skrifar 10. janúar 2022 21:44 Arnar Þór Jónsson er lögmaður frjálsu félagasamtakanna Frelsi og ábyrgð. Vísir/ÞÞ Heilbrigðisráðuneytið hefur vísað frá kæru samtakanna Frelsi og ábyrgð á hendur Lyfjastofnun. Samtökin kærðu ákvörðun stofnunarinnar um að afturkalla ekki markaðsleyfi bóluefnis Pfizer sem ætlað er börnum á aldrinum 5 til 12 ára.
Í úrskurði heilbrigðisráðuneytisins, sem birtur var á vefsíðu stjórnarráðsins, segir að kæran hafi borist þann 3. janúar síðastliðinn. Með henni var þess krafist „að ráðherra leggi fyrir Lyfjastofnun að afturkalla án tafar skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefnið Comirnaty fyrir 5-11 ára börn.“ Undir kærubréfið skrifar varaþingmaðurinn og lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson, fyrir hönd samtakanna. Kærandi, Frelsi og ábyrgð, byggði málatilbúnað sinn á ákvæði lyfjalaga sem kveður á um að Lyfjastofnun skuli afturkalla, fella niður tímabundið eða breyta markaðsleyfi lyfs ef talið er að sambandið milli ávinnings og áhættu af notkun lyfsins sé ekki hagstætt. Í kærunni segir að framleiðandi bóluefnisins hafi þegar staðfest að nauðsynlegt sé að þróa nýtt bóluefni við Covid-19 vegna tilkomu ómíkron-afbrigðis þess. Þórólfur Guðnason sagði í pistli á Covid.is í gær að þau bóluefni sem nú eru í notkun veiti vernd gegn ómíkron líkt og öðrum afbrigðum. Þá er því einnig haldið fram í kærunni að margir sérfræðingar telji að ekki eigi að bólusetja börn gegn Covid-19 vegna þess að lyfið sé ekki rannsakað nægilega vel. Í Pallborðinu á Vísi í fyrradag ræddu sérfræðingarnir Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir og Ingileif Jónsdóttir, prófessor í læknisfræði, bólusetningu barna og tilgang hennar. Þau sammældust um að ganglegt væri að bólusetja börn til að vernda þau gegn smiti og alvarlegum veikindum. Frelsi og ábyrgð ekki aðili að leyfisveitingu Í niðurstöðum ráðuneytisins segir að samtökin Frelsi og ábyrgð hafi engra lögvarinna hagsmuna að gæta af veitingu markaðsleyfis fyrir bóluefni Pfizer. Það sé mat ráðuneytisins að samtökin geti því ekki verið aðili að stjórnsýslukæru um leyfisveitinguna. Þá er einnig tekið fram að ákvörðun um að draga ekki til baka leyfisveitingu sé ekki eiginleg stjórnvaldsákvörðun. Því sé hún ekki kæranlega til ráðuneytisins með vísan til stjórnsýslulaga. Af ofangreindum ástæðum var kærunni vísað frá.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Fleiri fréttir Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Sjá meira