Mate skýtur á Valsara: Veit ekki á hvaða vegferð þeir eru Sæbjörn Þór S. Steinke skrifar 2. febrúar 2023 22:54 Mate Dalmay, þjálfari Hauka. Vísir/Diego „Akkúrat núna er ég svolítið vonlaus og svekktur,“ sagði Mate Dalmay, þjálfari Hauka, eftir tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Vals í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Hann nefndi tvennt sem hann var svekktastur með. Fyrra var kafli í fyrri hálfleik þar sem vantaði blóð á tennurnar til að búa til meiri mun. „Þeir einhvern veginn hægja rosalega á okkur þegar við erum í ágætis flæði, ég held að það sé fjórum-fimm sinnum þar sem einhver liggur hjá þeim og kemur svo inn á strax aftur. Ekkert eðlilega mikil reynsla í þessum „floppum“ og þykjustumeiðslum. Svo bilar ritaraborðið tvisvar. Þá einhvern veginn koðnum við niður.“ Það seinna er að við erum alltof litlir í „crunch time“ á meðan Kári setur mörg skot, Callum Lawson setur eina grísa flautukörfu ofan í og svo flautuþrist. Á þeim kafla erum við að klúðra troðslu, Emil er að klúðra sniðskoti, Danni er að klúðra flotskoti. Við náum ekki þessum auðveldu körfum, hvað þá einhverjum erfiðum.“ „Við vorum of litlir til að vinna í jöfnum leik og svo var það almennur leikþáttur í fyrri hálfleik.“ Mate viðurkennir að hann hafi ekki verið sáttur við allt það sem hann lagði upp með sóknarlega í lokaleikhlutanum. „Við erum líka gasaðir í fjórða, erum að hreyfa liðið of lítið og ég er ekkert sérstaklega ánægður með það sem ég fékk af bekknum í dag. Menn þorðu ekki alveg að vera til fannst mér. Það er rosalega erfitt að spila fjórir á móti fimm sóknarlega þegar menn eru að fela sig.“ Einn af byrjunarliðsmönnum Hauka, Orri Gunnarsson, missti af sínum öðrum leik í röð í kvöld vegna meiðsla. Mate vonast til að fá hann inn í næsta leik. Mate talaði um kaflann í fyrri hálfleik, hluta af þeim kafla var Hilmar Smári Henningsson á bekknum hjá Haukum þar sem hann var snöggur að næla sér í þrjár villur. Var hann svekktur út í Hilmar eða dómgæsluna? „Mér fannst þetta bara rosalega leiðinlegur leikur. Mér fannst þeir [dómararnir] falla í allar „floppgildrur“ Valsmanna. Þær eru rosalega margar og mjög mikið að falla í þær allar.“ „Ég veit ekki á hvaða vegferð þeir [Valsarar] eru. Þeir ættu kannski frekar að reyna spila betri körfubolta en þetta.“ Höfundi fannst Mate láta einhver orð falla í átt að Finni Frey Stefánssyni, þjálfara Vals, í leiknum. „Var ég að gera það? Það vita allir hvernig hann er, er í eyrunum á dómurunum allan tímann. Þegar ég er kominn með einhverja átta-níu titla þá kannski geri ég það líka. Ég fékk aðvörun strax og er á þeim stað í lífinu að ég á að grjóthalda kjafti. Það er bara sanngjarnt. En það voru engin orðaskipti, ég öskraði einhvern tímann út í loftið: „Hættiði nú þessu helvítis væli.“ Eitthvað svona en það var ekkert meira en það.“ Haukar hafa átt gott tímabil en eiga enn eftir að vinna liðin fyrir ofan sig í deildinni. Hvenær kemur að því? „Val ætlum við að vinna í undanúrslitum í apríl. Og ætli við vinnum ekki Keflavík í næstu viku?“ sagði sá ungverski að lokum.
Subway-deild karla Haukar Valur Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 84-76 | Kári skaut uppeldisfélagið í kaf Valsmenn eru aftur komnir á topp Subway-deildarinnar eftir átta stiga heimasigur gegn Haukum í fimmtándu umferð deildarinnar, lokatölur urðu 84-76. 2. febrúar 2023 22:35 Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn Viðar Örn í KA Íslenski boltinn Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Fleiri fréttir „Veit að Kobe væri stoltur af mér“ Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 84-76 | Kári skaut uppeldisfélagið í kaf Valsmenn eru aftur komnir á topp Subway-deildarinnar eftir átta stiga heimasigur gegn Haukum í fimmtándu umferð deildarinnar, lokatölur urðu 84-76. 2. febrúar 2023 22:35
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir