„Skilaboð til leikmanna um að það er ekki langt frá Pepsi Max-deildinni í hæstu hæðir í Meistaradeildinni“ Sindri Sverrisson skrifar 3. maí 2021 17:00 Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að búast megi við fleiri liðum en Breiðabliki og Val í toppbaráttunni í sumar. vísir/Sigurjón Fyrir ári síðan fylgdist Vilhjálmur Kári Haraldsson með Karólínu Leu dóttur sinni taka fyrstu skref í átt að sínum öðrum Íslandsmeistaratitli, með Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni. Í vor lék hún með Bayern München sem komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.
Vilhjálmur er nú tekinn við sem þjálfari Breiðabliks, eftir að Þorsteinn Halldórsson var ráðinn landsliðsþjálfari, og þarf að móta lið án Karólínu, Sveindísar Jane Jónsdóttur og fleiri lykilleikmanna sem horfnar eru á brott. Vilhjálmur ætti hæglega að geta notað dóttur sína sem dæmi um það hve stór stökk leikmenn geta tekið með nægilega góðri frammistöðu í Blikabúningnum. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir einbeitt á svip í leik í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.vísir/vilhelm „Auðvitað eru þetta skilaboð til leikmanna um að það er ekki langt frá Pepsi Max-deildinni í hæstu hæðir í Meistaradeildinni,“ sagði Vilhjálmur, en minnti jafnframt á að Karólína þyrfti að vera þolinmóð. Hún þurfti til að mynda að sitja á varamannabekknum í undanúrslitaleikjunum við Chelsea í Meistaradeildinni: „Þetta er hörð barátta eins og við höfum fengið að kynnast. Stelpan hefur ekki spilað margar mínútur, þó að hún hafi fengið að taka þátt í nokkrum leikjum. En hún er á ákveðinni vegferð með sínu liði og það er kannski verið að horfa meira til næsta tímabils fyrir hana. Vonandi kemur hún bara sterkari inn þá og spilar meira,“ sagði Vilhjálmur. Klippa: Þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks sem spáð er 2. sæti Fylkir klárlega með lið í toppbaráttu Vilhjálmur er mættur í brúna hjá Breiðabliki til að hjálpa liðinu að verja Íslandsmeistaratitilinn. Samkvæmt árlegri spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í deildinni endar Breiðablik hins vegar í 2. sæti en mjótt var á mununum á milli Breiðabliks og Vals í spánni. Bítast þessi tvö lið aftur um titilinn? „Ég á frekar von á því að þetta verði fjögur lið sem verða í baráttunni. Það kæmi mér ekkert á óvart að þetta yrði aðeins jafnara en í fyrra,“ sagði Vilhjálmur. Breiðablik hefur titilvörn sína á stórleik gegn Fylki annað kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4: „Fylkir er klárlega lið sem verður í þessari baráttu, búinn að bæta við sig sterkum stelpum, og svo eru fleiri lið þarna eins og Selfoss, Þór/KA, og svo held ég að Þróttur komi mörgum á óvart,“ sagði Vilhjálmur. Þó að lykilmenn hafi horfið á brott eru Blikar ekki á flæðiskeri staddir: „Það eru mikið minni breytingar en menn halda. Það fóru vissulega margir leikmenn út en við áttum marga leikmenn sem voru í „kælinum“ ef svo má segja – í meiðslum eða fæðingarorlofi. Það gerir það að verkum að heildarsvipur hópsins er sá sami, þó að margar hafi farið út og nokkrar nýjar komið inn,“ sagði Vilhjálmur.
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Tengdar fréttir „Ekki svona einfalt fyrir Val og Breiðablik í ár“ „Það er fínt að vita að einhverjir hafi álit á okkur,“ sagði Pétur Pétursson sposkur eftir að Val var spáð Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu kvenna í ár. 3. maí 2021 14:31 Valskonum spáð Íslandsmeistaratitlinum Valur verður Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í haust en nýliðarnir í Keflavík og Tindastól falla, ef marka má árlega spá félaganna tíu í deildinni. 3. maí 2021 12:32 Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Sjá meira
„Ekki svona einfalt fyrir Val og Breiðablik í ár“ „Það er fínt að vita að einhverjir hafi álit á okkur,“ sagði Pétur Pétursson sposkur eftir að Val var spáð Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu kvenna í ár. 3. maí 2021 14:31
Valskonum spáð Íslandsmeistaratitlinum Valur verður Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í haust en nýliðarnir í Keflavík og Tindastól falla, ef marka má árlega spá félaganna tíu í deildinni. 3. maí 2021 12:32