Hafna athugasemdum Sjúkratrygginga og 175 milljóna kröfu Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. janúar 2022 11:44 Einar Hermannsson er formaður SÁÁ. VÍSIR/VILHELM Formaður SÁÁ hafnar öllum athugasemdum sem eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands gerir við starfshætti samtakanna, sumar mjög alvarlegar. Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um tæpar 175 milljónir í endurgreiðslu, meðal annars vegna reikninga fyrir ráðgjafaviðtöl sem eftirlitsnefnd telur tilhæfulausa.
Stundin greindi frá málinu í morgun en það á sér margra mánaða aðdraganda en eftirlitsdeild Sjúkratrygginga hóf eftirlit með starfsemi SÁÁ í febrúar í fyrra. SÁÁ var svo tilkynnt um lokaniðurstöðu eftirlitsnefndar 29. desember síðastliðinn. Sjúkratryggingar gera aðallega athugasemdir við þrennt; að ungmennadeild SÁÁ á Vogi hafi verið vannýtt, að göngudeild SÁÁ hafi verið lokað árið 2020 og vegna þess sem Sjúkratryggingar segja ranga reikninga ráðgjafa vegna viðtala við skjólstæðinga. Einar Hermannsson formaður SÁÁ bendir á að grípa hafi þurft til lokunarinnar vegna heimsfaraldurs. „Þau vilja rukka okkur um að við lokuðum þegar mestu fjöldatakmarkanirnar voru, við gátum ekki haldið úti starfsemi í húsinu bara út af fjölda. Hér á göngudeildinni í Efstaleiti eru um 27 þúsund heimsóknir á ári,“ segir Einar. „Á sér enga stoð í raunveruleikanum“ Alvarlegasta gagnrýni eftirlitsdeildarinnar lýtur að reikningum vegna viðtala við skjólstæðinga. Það er talað um sutt óumbeðin símtöl, sem hafi verið hringd að frumkvæði ráðgjafa en rukkað fyrir þau sem ráðgjafasímtöl. Þetta hljómar ekki sérstaklega vel, hvernig útskýrið þið þetta? „Þegar þú lest þetta svona hljómar þetta mjög illa, ég get alveg tekið undir það. En þetta á sér enga stoð í raunveruleikanum. Öll þessi símtöl sem voru hringd voru annað hvort að beiðni skjólstæðinga eða þá að viðhalda sambandi við skjólstæðing,“ segir Einar. „En við höfum svosem sagt að það geti vel verið að það sé pínulítill hluti sem var ekki rétt rukkaður.“ Ekki heldur náðst í Kjartan Hrein Njálsson aðstoðarmann Landlæknis í dag en hann staðfestir við Stundina að embættið hafi verið upplýst um málið. Einar segir næstu skref að ræða við Sjúkratryggingar. „Það hefur í raun ekkert samtal átt sér stað allt þetta ferli.“ María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.Vísir/Sigurjón María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga segir þó að mikil samskipti hafi verið við SÁÁ í gegnum ferlið. „Þetta mál er enn þá í vinnslu og okkur finnst mikilvægt að því ljúki sem fyrst enda um mjög mikilvæga starfsemi að ræða,“ segir María. Fréttin var uppfærð klukkan 12:08 með viðbrögðum frá Maríu Heimisdóttur, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands.
Heilbrigðismál Fíkn Stjórnsýsla SÁÁ Kæra Sjúkratrygginga vegna starfshátta SÁÁ Sjúkratryggingar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira