Ætla ekki að segja hvað þetta minnir mig á

„Þetta lítur ekkert voðalega vel út,“ sagði Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu þegar hún var að undirbúa morgunmat, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Alexandra, sem er 22 ára gömul, er samningsbundin Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. Hún gekk til liðs við félagið frá Breiðabliki í janúar 2021.

„Ég undirbý oftast morgunmatinn minn kvöldið áður, því þá get ég vaknað í rólegheitum og tekið því frekar rólega,“ sagði Alexandra meðal annars.

Alexandra er í nærmynd í fimmta þætti af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin