Uppselt á leik sænska kvennalandsliðsins í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2021 09:31 Sænska landsliðskonan Stina Blackstenius í barátti við íslensku landsliðskonuna Glódísi Perlu Viggósdóttur í leik liðanna í síðustu undankeppni. EPA-EFE/Bjorn Larsson Eins og við hér heima á Íslandi þá eru Svíar með mjög spennandi kvennalandslið í fótboltanum. Það er líka mikill áhugi á sænsku stelpunum þessa dagana eins og sjá má á fréttum frá Svíþjóð.
Sænska knattspyrnusambandið sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem kom fram að uppselt er á leik sænska kvennalandsliðsins í undankeppni HM í kvöld. Det blir storpublik när Sverige tar emot Finland i VM-kvalet på Gamla Ullevi i morgon. https://t.co/mkjiw3354E— SVT Sport (@SVTSport) November 24, 2021 Svíar mæta þá nágrönnum sínum Finnum á Gamla Ullevi leikvanginum. Svíar eru efstir í riðlinum með fullt hús eftir þrjá leiki en Finnar eru í öðru sæti, þremur stigum á eftir. 14.500 miðar voru í boði og nú eru þeir allir seldir. Mæti allt þetta fólk á völlinn verður sett nýtt áhorfendamet á leik sænska kvennalandsliðsins í Svíþjóð þegar frá eru taldir leikir liðsins á stórmóti. „Áhorfendurnir eru mikilvægasta fólkið okkar fyrir utan völlinn og það er stórkostlegt að það sé uppselt á leikinn,“ sagði fyrirliðinn Caroline Seger í fréttatilkynningu sænska sambandsins. „Það gefur okkur leikmönnunum mikla aukaorku að fá þessar fréttir í aðdraganda leiksins. Við munum gera allt okkar til að bjóða upp á góðan fótboltaleik. Okkur hlakkar til að spila fyrir framan alla þessa frábæru stuðningsmenn og búa til ógleymanlegt kvöld saman,“ sagði Seger. Sveriges VM-kvalmatch utsåld: "Helt magiskt"https://t.co/haiQGyL9Lm pic.twitter.com/YfaSa6j01s— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) November 24, 2021 Það hafa bara mætt fleiri á kvennalandsleik í Svíþjóð þegar Svíar héldu EM sumarið 2013 en íslenska kvennalandsliðið fór einmitt í átta liða úrslitin á því móti. Sænska kvennalandsliðið hefur ekki tapað leik á árinu 2021 fyrir utan úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum þegar liðið tapaði á móti Kanada í vítakeppni. Alls eru þetta 13 sigrar, 2 jafntefli og 1 tap í vítakeppni sem er magnaður árangur. Svíar hafa unnið verðlaun á tveimur síðustu stórmótum en sænska liðið varð í öðru sæti á Ólympíuleikunum síðasta sumar og í þriðja sæti á HM sumar 2019.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Sænski boltinn Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Sjá meira