Biðst velvirðingar ef fólki mislíkaði umdeild auglýsing Snorri Másson skrifar 21. janúar 2022 12:03 Andrés Vilhjálmsson markaðsstjóri Kjarnafæðis segir fleiri ánægða en óánægða með umdeilda auglýsingu fyrirtækisins á þorramat. Kirkjunnar menn eru klofnir í fylkingar. Vísir/Kjarnafæði Markaðsstjóri Kjarnafæðis biðst velvirðingar ef fólki mislíkaði auglýsing fyrirtækisins um þorramat. Samband íslenskra kristniboðsfélaga hefur hvatt Ríkisútvarpið til að taka auglýsinguna úr umferð vegna blótsyrða.
Það er bóndadagur. Matvælaframleiðendur reyna að selja þorramatinn heim vegna samkomutakmarkana og áríðandi að koma skilaboðum til neytenda, en auðvitað ekki sama hvernig það er gert. Kjarnafæði valdi umdeilda leið í samstarfi við auglýsingastofuna Cirkus. Við heyrum í Helen Símonarson leikkonu í brotinu hér að neðan. Þetta er hneykslanlegur munnsöfnuður í útvarpi að mati margra á samfélagsmiðlum. Samband íslenskra kristniboðsfélaga blandar sér í umræðuna á Facebook og skrifar: „Fyrirtækin virðast skilja blótsyrðin og bölvið sem matarblót. Fyrirtækinu til skammar,“ segir þar. Ragnar Gunnarsson, prestur og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga, segir í samtali við fréttastofuna að menn átti sig á tvíræðninni, en þetta sé ekki fallegt. „Það er auðséð að sumir ætla sér ekki að versla við þetta fyrirtæki á næstunni. Okkar fólk er ekki ánægt með þetta. Þetta misbýður sumum. Öðrum finnst þetta bara til skammar,“ segir Ragnar. Með okkar fólki segist hann eiga við fólk sem tengist samtökunum og að margt sé það sannarlega kirkjunnar fólk. Munnsöfnuðurinn tímabundinn Andrés Vilhjálmsson markaðsstjóri Kjarnafæðis kveðst feginn að fleiri virðist ánægðir en óánægðir með auglýsinguna. Skiljanlega sé þó meining aldrei að fólki mislíki heiftarlega auglýsingar fyrirtækisins. „Við verðum bara að fá að leggja mat á það eftir herferðina hvort við höfum gengið of langt eða ekki. Í þessu augnabliki finnst mér ekki. Það verða smá breytingar á auglýsingunum þegar það fer að líða. Þessi munnsöfnuður tekur stutt yfir og við biðjumst velvirðingar ef fólki hefur mislíkað okkar auglýsing,“ segir Andrés í samtali við fréttastofu. Rétt er að gera grein fyrir því að íslensk klerkastétt er ekki öll eins og hún leggur sig hneyksluð á auglýsingunni. Öðru nær, séra Hjálmar Jónsson fyrrverandi dómkirkjuprestur er hrifinn, ef marka má vísu sem hann setti saman af tilefninu: Norðlenska kikkið ég klárlega finn, kunnuglegt orðbragðið mælt fram af þunga. Helvítis, bölvaður, hálfvitinn þinn, hakkaðu í þig slátur og punga. Hér að neðan er færsla frá manni sem er sannarlega ósáttur við auglýsinguna og hið sama gildir um flesta sem gera athugasemd við færsluna.
Þorrablót Þorramatur Auglýsinga- og markaðsmál Þjóðkirkjan Bóndadagur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Viðskipti innlent Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sjá meira