Bjartsýn á að komast í höfn Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 5. júlí 2022 08:51 Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra segist bjartsýn. Vísir/Egill Aðalsteinsson Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir vandasama siglingu fram undan varðandi hagstjórnina enda hafi landsmenn ekki séð aðrar eins verðbólgutölur í langan tíma.
Lilja mætti í Bítið á Bylgjunni í morgun og ræddi um innihald greinar sem hún skrifaði í Morgunblaðið sem ber heitið „Vandasöm sigling.“ „Tilgangurinn með þessari grein er fyrst og síðast að hvetja okkur öll til þess að ná utan um þessa stöðu öll saman, um verðbólguþrýsinginn. Vegna þess að það er svo að verðbólgan í raun og veru hefur svo ofboðslega slæm áhrif á allt hagkerfið þegar öll verð eru komin á fleygiferð og þá er hætta að við náum ekki tökum á þessu. Að við séum þá að fara inn í erfitt tímabil varðandi hagstjórn á næstu tvö til þrjú árin.“ Lilja segir verðbólguþróunina eiga sér stað á heimsvísu og hafi Bandaríkin ekki séð jafn háar verðbólgutölur og núna í yfir fjörutíu ár. „Vegferðin núna er auðvitað að allir líti í eigin barm og sér í lagi auðvitað stjórnvöld og fyrirtæki og fólkið í landinu, hvernig náum við tökum á þessu.“ „Ég tel að seðlabankinn okkar, hann fór tiltölulega hratt í stýrivaxtalækkun og svo í stýrivaxtahækkun og ég held að það vinni með okkur á þessum tímapunkti að við séum með sjálfstæða peningastefnu og sjálfstæðan seðlabanka.“ Lilja segist bjartsýn á framtíðina en þó með miklum fyrirvara. „Ég er líka bjartsýn á framtíðina vegna þess að hagkerfið okkar hefur sýnt alveg ótrúlegan kraft, það er fimm prósenta hagvöxtur í ár.“ Hún segir að allar útflutningsgreinar séu að gera það mjög gott. „Þetta hefur auðvitað valdið því að gengið hefur verið mjög stöðugt.“ Aðspurð hvenær við getum búist við að komast í höfn segir Lilja: „Ég tel að ef það verður ekki einhver svona verðbólguspírall upp á við þá getum við alveg verið komin þangað eftir 12, 18 mánuði, ég segi þetta með öllum heimsins fyrirvörum.“ Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Bítið Verðlag Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira