Viðar ekki í hóp og þarf að „vinna í sínum málum“

Viðar Örn Kjartansson
Viðar Örn Kjartansson Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Framherjinn Viðar Örn Kjartansson er ekki í leikmannahópi KA sem er undir gegn KR, 1:0, á heimavelli í Bestu deildinni í fótbolta þegar þessi frétt er skrifuð.

„Hann er bara ekki í hóp. Hann þarf að vinna í sínum málum varðandi form og fleira," sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA um fjarveru Viðars við Stöð 2 sport fyrir leik.

Viðar hefur leikið fjóra leiki með KA í Bestu deildinni á leiktíðinni, alla sem varamaður, og hefur ekki komist á blað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert