Telja rétt að fráfarandi meirihlutaflokkar stilli saman strengi fyrst Kjartan Kjartansson skrifar 15. maí 2022 12:37 Oddvitar stærstu stjórnmálaframboðanna í Reykjavík segja fátt um mögulegt meirihlutasamstarf eftir að meirihlutinn féll í kosningunum í gær. Borgarstjóri og oddviti Pírata eru sammála um að réttast sé að fráfarandi meirihlutaflokkar ræði fyrst saman.
Núverandi meirihlutaflokkar fengu samtals tíu borgarfulltrúa en tólf þarf til þess að mynda meirihluta. Samfylkingin tapaði tveimur fulltrúum og Viðreisn einum. Á meðan bætti Framsóknarflokkurinn við sig fjórum mönnum. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tveimur borgarfulltrúum en er engu að síður stærstur með sex fulltrúa. Dagur B. Eggertsson, starfandi borgarstjóri, lýsti vonbrigðum með að Samfylkingin hefði ekki haldið sínu í borginni og meirihlutinn þannig haldið. Í viðtali í aukafréttatíma á Stöð 2 í hádeginu benti hann þó á að flokkar sem styðja borgarlínu og græna framþróun borgarinnar hafi fengið yfir 60% stuðning en þeir sem eru á móti henni hafi horfið eða verið langt undir 30% fylgi. Spurður út í hvort að Samfylkingin gæti myndað nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Pírötum sagði Dagur að eðlilegt væri að fráfarandi meirihlutaflokkar byrjuðu á að fara yfir stöðuna í sameiningu og stilltu saman strengi áður en næstu skref yrðu stigin. „Meirihlutaflokkarnir hafa auðvitað unnið mjög vel saman á umliðnu kjörtímabili og hvergi skuggi fallið á,“ sagði Dagur. Í sama streng tók Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata. „Þetta verður allt að koma í ljós en eins og Dagur sagði þá held ég að það sé gott að meirihlutaflokkarnir stilli svolítið saman strengi sína. Við höfum staðið mjög vel saman að þessum mikilvægu grænu málum,“ sagði Dóra Björt. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins og Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata.Vísir/Stöð 2 Gefur aðeins loðin svör að svo stöddu Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, var ánægður með úrslitin. Hann sagðist ætla að taka daginn í að melta stöðuna áður en samtöl við oddvita hinna flokkanna í borgarstjórn hæfust. „Ræða málefnin og sjá hvert það leiðir okkur,“ sagði Einar. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagðist eiga auðvelt með að sjá flokkinn í meirihluta. Stór hluti kjósenda í Reykjavík hafi kallað eftir breytingum með atkvæði sínu. „Ég vona að hér á næsta dögum verði hægt að mynda meirihluta um breyttar áherslu í Reykjavík,“ sagði hún. Hafnaði Hildur því að hún þyrfti að vinna með Samfylkingunni til að komast í meirihluta. „Alls ekki, það eru ýmsar myndir í kortunum sem er eftir að raða upp en ég get ekki gefið neitt nema loðin svör á þessu stigi málsins,“ sagði Hildur.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2022 Samfylkingin Vinstri græn Viðreisn Píratar Borgarstjórn Framsóknarflokkurinn Tengdar fréttir „Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu“ Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík, töpuðu manni í Hafnarfirði, Kópavogi … en það breytir ekki þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er eftir sem áður stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu. 15. maí 2022 12:02 Afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi fyrir metnað Íslendinga í loftslagsmálum, að sögn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Ráðherra Sjálfstæðisflokks segir úrslitin í Reykjavík kröfu um breytingar. 15. maí 2022 11:35 Framsókn sigurvegari á landsvísu Framsóknarflokkur vann stórsigur í kosningum í gær víða um land, sérstaklega í kringum höfuðborgarsvæðið. Flokkurinn er í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndun í borginni eftir fall síðasta meirihluta. 15. maí 2022 11:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Sjá meira
„Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu“ Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík, töpuðu manni í Hafnarfirði, Kópavogi … en það breytir ekki þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er eftir sem áður stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu. 15. maí 2022 12:02
Afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi fyrir metnað Íslendinga í loftslagsmálum, að sögn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Ráðherra Sjálfstæðisflokks segir úrslitin í Reykjavík kröfu um breytingar. 15. maí 2022 11:35
Framsókn sigurvegari á landsvísu Framsóknarflokkur vann stórsigur í kosningum í gær víða um land, sérstaklega í kringum höfuðborgarsvæðið. Flokkurinn er í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndun í borginni eftir fall síðasta meirihluta. 15. maí 2022 11:00