Sergio Agüero missir líklega af Liverpool leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2020 07:30 Sergio Agüero átti erfitt með að leyna svekkelsi sínu eftir að hann meiddist í leiknum á móti West Ham en Argentínumaðurinn þurfti að fara af velli í hálfleik. AP/Paul Childs
Sergio Agüero verður ekki með Manchester City á móti Marseille í Meistaradeildinni í kvöld og Pep Guardiola var spurður út í meiðsli argentínska sóknarmannsins á blaðamannafundi fyrir leikinn í gær. „Hann verður frá í tvær til þrjár vikur, Sergio (Agüero) og (Benjamin) líka,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City. Guardiola tók Agüero af velli í hálfleik í 1-1 jafntefli við West Ham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. „Sergio meiddist á vöðva í síðasta leik. Þegar þú ert frá í fjóra eða fimm mánuði vegna hnémeiðsla þá er alltaf áhætta þegar þú kemur til baka,“ sagði Guardiola. Sergio Aguero is a doubt for #MCFC's Premier League clash against #LFC on November 8 due to a thigh injury.— Sky Sports News (@SkySportsNews) October 26, 2020 Manchester City fær Liverpool í heimsókn á Etihad leikvanginn 8. nóvember og það væri slæmt fyrir City að vera án besta framherja síns í leiknum. Það lítur þó út fyrir það ef marka má orð Guardiola. „Við reyndum að fara eins varlega með hann og við gátum. Hann fékk bara 50 til 55 mínútur í hverjum leik. Það var bara ekki möguleiki að koma í veg fyrir þetta. Þetta mun snúast um hvernig þessi meiðsli eru. Við búumst minnst við tíu til fimmtán dögum en það gætu orðið þrjár vikur eða jafnvel heill mánuður,“ sagði Guardiola. Leikurinn á móti Liverpool er eftir tólf daga. Sergio Agüero er því á meiðslalistanum ásamt þeim Gabriel Jesus, Fernandinho, Benjamin Mendy, Nathan Ake og Fernandinho. Sergio Aguero is a doubt for Manchester City's Premier League clash against Liverpool on November 8 due to a thigh injury. #awlfc [sky] pic.twitter.com/ghmg83oJFS— Anfield Watch (@AnfieldWatch) October 26, 2020 „Kevin (De Bruyne) er kominn aftur og spilaði nokkrar mínútur á móti West Ham. Aymeric (Laporte) er líka leikfær á ný. Það er stutt í bæði Nathan (Ake) og Gabriel (Jesus) sem ættu að vera komnir til baka eftir viku eða tíu daga. Hinir verða frá í tvær til þrjár vikur,“ sagði Guardiola. Guardiola sagði síðan að Manchester City hefði ekki haft efni á því að kaupa framherja í sumar sem er núna að koma í bakið á félaginu vegna meiðsla Sergio Agüero og Gabriel Jesus á sama tíma. „Þegar þú ákveður að kaupa framherja þá verður hann að vera í sama klassa og Agüero og Jesus. Við höfðum ekki efni á því og það er veruleikinn okkar,“ sagði Pep Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Skúrkurinn endaði sem hetjan Íslenski boltinn FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Fleiri fréttir Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Sjá meira