Nokkrar tilgátur en enginn handtekinn eftir morðtilræði í Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2021 09:21 Volodýrmýr Zelenskíj í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann var kjörinn forseti Úkraínu árið 2019 á grundvelli loforða um að uppræta spillingu í landinu. AP/Eduardo Munoz Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir bíl eins nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu í gær. Tilgátur eru um að óánægðir óligarkar eða jafnvel rússnesk stjórnvöld hafi fyrirskipað tilræðið.
Serhij Shefir, háttsettur ráðgjafi og náinn vinur Volodýmýrs Zelenskíj, forseta Úkraínu, slapp ómeiddur þegar bifreið hans var veitt fyrirsát í skóglendi á milli tveggja þorpa utan við höfuðborgina Kænugarð í gær. Skotið var á bílinn með sjálfvirkum rifflum. Ökumaðurinn var ekki eins heppinn. Hann er sagður liggja alvarlega særður á sjúkrahúsi. Lögreglan segist hafa þrjár tilgátur um eðli árásarinnar og hvað vakti fyrir tilræðismönnunum. Tilræðinu kunni að hafa verið ætlað að setja þrýsting á ríkisstjórn landsins eða skapa pólitískan glundroða. Það gæti einnig hafa verið skipulagt af leyniþjónustu erlends ríkis. Denys Monastyrskíj, innanríkisráðherra, segir að markmið árásarmannanna hafi ekki verið að hræða heldur að drepa, að því er segir í frétt Reuters. Shefir sjálfur sagðist telja að tilræðinu hafi verið ætlað að ógna Zelenskíj forseta. „Ég held að þetta muni ekki hræða forsetann,“ sagði Shefir. Ætla ekki að lúffa fyrir ólígörkum Bandamenn Zelenskíj forseta hafa leitt líkur að því að einhver eða einhverjir af óligörkum landsins hafi lagt á ráðin um tilræðið. Ástæðan sé frumvarp Zelenskíj sem liggur fyrir úkraínska þinginu sem er ætlað að draga úr áhrifum óligarkana, hópi manna sem auðguðust gífurlega eftir fall Sovétríkjanna, í landinu. Aðrir segja ekki hægt að útiloka að stjórnvöld í Kreml kunni að hafa staðið að tilræðinu. Þau hafa stutt vopnaða aðskilnaðasinna sem berjast við stjórnarherinn í austanverðri Úkraínu allt frá því að Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014. Talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar segir ásakanir um aðild hennar að tilræðinu gegn Shefir ekki eiga við nein rök að styðjast. Zelenskíj forseti var staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær Hann sagðist ekki vita hver bæri ábyrgð á tilræðinu en hét sterkum viðbrögðum. „Að senda mér skilaboð með því að skjóta vin minn er veikleikamerki,“ sagði forsetinn sem ætlaði að fljúga beint heim eftir ræðu sína á allsherjarþinginu. Forsetinn segist ekki ætla að kvika með frumvarp sitt gegn óligörkunum, þvert á móti „Þetta hefur ekki áhrif á styrkleika teymisins okkar, á þá stefnu sem ég hef tekið með teymi mínu að breyta, að hreinsa til í efnahagslífinu, að berjast gegn glæpum og stórum og áhrifamiklum auðhringjum,“ segir Zelenskíj.
Úkraína Tengdar fréttir Skotið á aðstoðarmann Úkraínuforseta Ökumaður bifreiðar nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu særðist þegar skotið var á bílinn í morgun. Ráðgjafinn slapp ómeiddur en úkraínskir embættismenn lýsa árásinni sem morðtilræði. 22. september 2021 11:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Skotið á aðstoðarmann Úkraínuforseta Ökumaður bifreiðar nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu særðist þegar skotið var á bílinn í morgun. Ráðgjafinn slapp ómeiddur en úkraínskir embættismenn lýsa árásinni sem morðtilræði. 22. september 2021 11:21