Smellti kossi á fyrirliðann (myndskeið)

Elliði Snær Viðarsson og Ýmir Örn Gíslason fallast í faðma …
Elliði Snær Viðarsson og Ýmir Örn Gíslason fallast í faðma undir lok leiks í gær. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Elliði Snær Viðarsson og Ýmir Örn Gíslason voru ansi ánægðir með frábært dagsverk í vörninni þegar ljóst var að Ísland væri að vinna afar frækinn sigur á ólympíumeisturum Frakklands á EM 2022 í handknattleik í gær.

Þegar tæp ein mínúta var eftir var sigurinn sannarlega í höfn og Elliði Snær, rak Ými Erni, sem var fyrirliði í gær, af því tilefni koss á kinnina í kjölfar handabands þeirra í millum. Má sjá fögnuð þeirra í myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Báðir áttu þeir sannkallaðan stórleik í íslensku vörninni og Elliði Snær var sömuleiðis öflugur í sókninni þar sem hann skoraði fjögur mörk í 29:21-sigri Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka