Flestar skammbyssurnar íþrótta- eða atvinnutæki Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. febrúar 2021 20:24 Langflestar byssur á Íslandi eru notaðar til veiða eða íþróttaiðkunar. Lögregla verður ekki mikið vör við að skotvopnum sé smyglað til landsins. Þetta sagði Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi í leyfadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag.
RÚV greindi frá því í gær að 4 þúsund skammbyssur væru í einkaeigu á Íslandi. Þá hefur áður komið fram að skotvopn á landinu séu rúmlega 70 þúsund. Að sögn Jónasar eru svokallaðar kindabyssur, sem hann kallar „atvinnutæki“ rúmlega þúsund talsins en langflestar skammbyssurnar eru notaðar til íþróttaiðkunnar. „Viðkomandi þarf að vera tvítugur, það þarf að sækja um leyfi, það þarf að skila læknisvottorði,“ sagði Jónas um kröfurnar sem gerðar eru til byssueigenda. Tveir meðmælendur þurfa að skrifa undir umsókn og þá geta minniháttar lögbrot komið í veg fyrir leyfisveitingu. Í fyrra voru sjö skotvopn tilkynnt stolin. Ekkert þeirra var geymt á þann hátt sem lög kveða á um.Nordicphotos/Getty „Góðkunningjarnir“ frekar með stolnar byssur Krafan um læknisvottorð snýst aðallega um að fá staðfestingu á andeglu ástandi umsækjanda, að sögn Jónasar. Við endurnýjum þarf að vísa fram nýju vottorði og þá geta komið upp mál sem kalla á sérstaka athugun. „Við erum með lögreglukerfið okkar og þar geta komið upp atvik eða veikindi og þá köllum við eftir læknisvottorði,“ útskýrir Jónas. Samkvæmt vopnalögum krefst byssueign þess að skotvopnið sé geymt í læstri „hirslu“ en Jónas segir það þó ekki nánar útskýrt í löggjöfinni. Hins vegar kalli fjórða byssa eiganda á sérstakar ráðstafanir. „Við fjórðu byssu skoðum við skápa betur og erum með sérstaka vinnureglu um þá skápa; veggþykkt og bolta í vegg ef þeir eru léttari en 150 kíló,“ segir Jónas. Aðalatriðið sé að tryggja að óviðkomandi komist ekki í skotvopnin. Jónas segir ómögulegt að segja til um fjölda óskráðra skotvopna á landinu. „En ég held að við sleppum ekkert við það frekar en aðrar þjóðir að vera með eitthvað af slíku,“ segir hann. „Það er þó þannig að í húsleitum og heimsóknum til góðkunningja okkar þá erum við ekki að leggja hald á óskráðar smyglaðar byssur, það eru frekar stolnar byssur sem er þá stolið hérna heima.“ Þá gerist það ekki oft að tollgæslan leggi hald á skotvopn.
Lögreglumál Smygl Reykjavík síðdegis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Sjá meira