Ásakanir um sýndarmennsku í auðlindaumræðu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 10. maí 2021 14:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tókust nokkuð harkalega á um auðlindaákvæðið á Alþingi í dag með frammíköllum undir ræðum hvorrar annarrar.
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma rakti Þorgerður stöðu sjávarútvegsins hér á landi og sagði nauðsynlegt að sólunda ekki tækifærinu sem felist í breytingum á auðlindákvæði stjórnarskrárinnar. „Það blasir við hversu nauðsynlegt það er að sólunda einmitt núna ekki þessi tækifæri, að festa rækilega í sessi eignarhald þjóðarinnar yfir auðlindinni og koma í veg fyrir enn frekari ítök hagsmunaafla sem ráða hér of miklu í okkar samfélagi eins og bent hefur verið á, af meðal annars seðlabankastjóra. Tímabinding réttinda aðgangsins að auðlindinni er algjört lykilatriði,“ sagði Þorgerður. Katrín sagði skýrt í ákvæðinu sem hún lagði fram að heimildirnar verði ekki afhentar varanlega. Í greinargerð frumvarpsins komi fram að það merki að þær séu annað hvort tímabundnar eða uppsegjanlegar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.vísir/Vilhelm Þorgerður sagði ákvæðið sýndarmennsku. „Auðlindaákvæðið breytir engu, breytir akkúrat engu og það er þessi sýndarmennska sem ég er að tala um þegar verið er að setja fram auðlindaákvæði sem ekkert bit er í,“ sagði Þorgerður. Tryggja eigi gagnsæi og dreifða eignaraðild. „Við þurfum að tryggja tímabindingu þannig að þjóðin hafi ótvírætt forræði yfir auðlindinni, ekki afhenda hana með einhverjum loðnum hætti til sjávarútvegsins til lengri tíma. Ég er þeirrar skoðunar að auðlindaákvæðið sem núna liggur fyrir, að það gefi íslenskum almenningi lítið sem ekkert og hrófli ekki við neinu,“ sagði Þorgerður undir bjölluglamri forseta Alþingis sem minnti rækilega á að ræðutími væri liðinn. Katrín sagði stórmál að undirstrika rétt íslensku þjóðarinnar til auðlinda sinna í stjórnarskrá.-. „Það er sýndarmennska að halda öðru fram,“ sagði Katrín. Ljóst er að deilan um auðlindaákvæðið er ekki útkláð en Katrín og Þorgerður héldu samtali sínu áfram þvert yfir salinn eftir að fyrirspurninni hafði verið svarað og sá Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþigis, sig knúinn til þess að biðja um hljóð.
Stjórnarskrá Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Fleiri fréttir Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira