„Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Andri Már Eggertsson skrifar 27. mars 2024 21:40 Sebastian Alexandersson hefur verið hressari á hliðarlínunni. Vísir/Vilhelm HK vann fimm marka útisigur gegn Víkingi 21-26. Leikurinn var jafn og spennandi nánast allan leikinn en HK sigldi fram úr undir lokin. Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, var afar ánægður með varnarleik liðsins. „
Við erum búnir að spila þessa vörn í þrjú ár. Stundum lítur hún vel út og stundum ekki eins og allar varnir gera. Á góðum degi er erfitt fyrir liðin að finna lausn á þessari vörn en sum betri lið hafa gæði til að leysa hana. Í dag höfðum við yfirhöndina en ég var alltaf að bíða eftir því að þeir spiluðu 7 á 6,“ sagði Sebastian Alexandersson í viðtali við Vísi eftir leik. Sebastian var afar ánægður með vörn HK sem að hans mati þvingaði Víkinga í tapaða bolta ásamt því skoruðu Víkingar aðeins 21 mark. „Ég get sagt það að ég myndi ekki vilja vera í sókn gegn þessari vörn á góðum degi. Þú ferð að flýta þér með boltann og það kallar á mistök.“ Í síðari hálfleik var staðan jöfn 16-16 en þá komu þrjú mörk í röð hjá HK sem Sebastian var ánægður með. „Við vissum hvað þessi leikur þýddi. Þetta var úrslitaleikur fyrir okkur, við fáum engan bikarúrslitaleik og erum ekki að fara í úrslitakeppnina. Við erum ekkert sloppnir það eru enn þá fjögur stig í pottinum og við erum bara einu stigi á undan. Við þurfum að vera á tánum og vinna næsta leik líka til þess að bjarga okkur.“ Ungstirnin Ágúst Guðmundsson og Haukur Ingi Hauksson spiluðu mikið í kvöld og Sebastian var ánægður með þeirra frammistöðu en skaut á umræðuna þar sem búið var að kalla eftir að þessir leikmenn myndu spila meira. „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum. Menn standa sig misjafnlega vel á æfingum. Haukur er búinn að vera inn og út úr hóp og það hefur verið stigandi hjá honum á æfingum. Sömuleiðis með Ágúst sem hefur spilað vel með U-liðinu og það var kominn tími til þess að gefa þeim tækifæri.“ Þetta var annar sigur HK eftir að tilkynnt var að Sebastian myndi ekki halda áfram með liðið og Halldór Jóhann Sigfússon tæki við eftir tímabilið. Aðspurður hvernig það hefur verið fyrir hann að þjálfa liðið eftir þær breytingar sagði Sebastian að það væri erfiðara fyrir hann sem manneskju en þjálfara. „Sem þjálfara er hausinn á leikmönnum eina áskorunin. Fyrir mig sem manneskju var það ekkert spes en við erum ekki að ræða það hér heldur handbolta.“ „Það kom slæmur tími hjá okkur út af ýmsum ástæðum og það tók langann tíma að ná liðinu aftur á strik. Ég var jákvæður fyrir þennan leik þar sem við erum á uppleið aftur,“ sagði Sebastian Alexandersson að lokum.
HK Olís-deild karla Mest lesið „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Handbolti Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Handbolti Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 86-79 | Einvígið á leið í oddaleik Körfubolti Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Handbolti Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Fótbolti Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Fótbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Eiginkona Jokic í hjartnæmu myndbandi um þann besta Körfubolti Fleiri fréttir „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Sjá meira