Harry Kane jafnaði í kvöld markamet Tottenham Hotspur með því að skora sigurmark liðsins í 1:0-sigri á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Hann fór þar með upp að hlið Jimmys Greaves heitins, sem skoraði 266 mörk fyrir liðið á árunum 1961 til 1970.
Mörkin hefur Kane skorað í 415 leikjum í öllum keppnum frá árinu 2011 og er aðeins tímaspursmál hvenær hann bætir markamet Greaves.
Kane hefur þá skorað 199 mörk í 300 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.