Fótbolti

Sverrir Ingi dregur sig úr lands­liðs­hópnum | Guð­mundur kemur inn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðmundur Þórarinsson er mættur í íslenska landsliðið á ný.
Guðmundur Þórarinsson er mættur í íslenska landsliðið á ný. Mateusz Slodkowski/Getty Images

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður PAOK í Grikklandi, hefur dregið sig úr landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2024. Í hans stað kemur Guðmundur Þórarinsson, leikmaður OFI Crete.

Knattspyrnusamband Íslands greindi frá því í gærkvöld, föstudag, að hinn 29 ára gamli Sverrir Ingi hefði þurft að draga sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Miðvörðurinn á að baki 40 A-landsleiki.

Í hans stað kemur vinstri bakvörðurinn Guðmundur inn en hann var meðal þeirra sem titlaðir voru „Leikmenn til vara“ þegar landsliðshópur Íslands var kynntur á dögunum. Hinn þrítugi Guðmundur á að baki 12 A-landsleiki, sá síðasti kom gegn Norður-Makedóníu í nóvember 2021.

Hér að neðan má sjá landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Bosníu-Hersegóvínu og Liechtenstein síðar í þessum mánuði.

Markmenn:

Rúnar Alex Rúnarsson - Alanyaspor - 20 leikir

Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 4 leikir

Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking FK - 3 leikir

Varnarmenn:

Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 100 leikir, 2 mörk

Hörður Björgvin Magnússon - Panathinaikos - 44 leikir, 2 mörk

Guðmundur Þórarinsson - OFI Crete - 12 leikir

Alfons Sampsted - Twente - 14 leikir

Davíð Kristján Ólafsson - Kalmar FF - 13 leikir

Daníel Leó Grétarsson - Slask Wroclaw - 12 leikir

Miðjumenn:

Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley - 82 leikir, 8 mörk

Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 45 leikir, 5 mörk

Guðlaugur Victor Pálsson - D.C. United - 32 leikir, 1 mark

Arnór Sigurðsson - IFK Norrköping - 25 leikir, 2 mörk

Jón Dagur Þorsteinsson - OH Leuven - 24 leikir, 4 mörk

Mikael Neville Anderson - AGF - 18 leikir, 2 mörk

Aron Elís Þrándarson - OB - 17 leikir, 1 mark

Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 17 leikir, 3 mörk

Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 16 leikir, 2 mörk

Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 15 leikir, 1 mark

Mikael Egill Ellertsson - Venezia - 10 leikir

Hákon Arnar Haraldsson - FC Köbenhavn - 7 leikir

Sóknarmenn:

Alfreð Finnbogason - Lyngby - 63 leikir, 15 mörk

Andri Lucas Guðjohnsen - IFK Norrköping - 13 leikir, 3 mörk

Sævar Atli Magnússon - Lyngby - 2 leikir

Leikmenn til vara:

Hjörtur Hermannsson - AC Pisa - 25 leikir, 1 mark

Dagur Dan Þórhallsson - Orlando City - 4 leikir

Nökkvi Þeyr Þórisson - Beerschot - 1 leikur

Sveinn Aron Guðjohnsen - Eflsborg - 19 leikir, 2 mörk




Fleiri fréttir

Sjá meira


×